Sjötíu keppendur frá 16 löndum skráðu sig til leiks á árlegt Evrópumeistaramót í mávagargi sem haldið var í Belgíu um síðustu helgi. Mikið var um góð tilþrif og dómnefndinni því vandi á höndum. „Mikilvægast er að útiloka alla geggjunina sem er í gangi og hugsa bara: Heyri ég í mávum hér? Mávar eiga sér um 15 mismunandi hljóð og maður spyr sig: Hvert þeirra heyri ég nú? Hljómar það vel í mín eyru? Svo dæmir maður,“ segir Hannelore Maelfait, einn dómara í keppninni.
Carine Gronholz frá Noregi bar sigur úr bítum í fullorðinsflokki og fékk flest stig allra keppenda, 90 af 100 mögulegum. „Ég varð fertug í fyrra og nú sagði það til sín en ég hugsaði sem svo: Ég vil ekki vera með leiðindi heldur gera eitthvað skemmtilegt. Þess vegna bað ég um að fá að vera með,“ sagði hún eftir mótið.