Hollenska skemmtiferðaskipið Hondius er væntanlegt til Tenerife snemma í fyrramálið, segir Monica Garcia Gomez, heilbrigðisráðherra Spánar. Skipið hefur verið í kastljósi fjölmiðla um allan heim síðastliðna viku.
Sex hantaveirusmit hafa verið staðfest af átta grunuðum frá því að veiran kom upp fyrir um viku. Þrír létust um borð eftir að skipið lagði úr höfn í Argentínu í apríl. Þrír voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. Þeir eru á sjúkrahúsi samkvæmt fyrirtækinu Oceanwide, sem sér um rekstur skipsins.
Enn eru um 150 manns um borð í skipinu, farþegar og áhöfn en fyrirtækið segir alla vera án einkenna.
Stjórnvöld á Spáni heimiluðu skipinu að koma, þrátt fyrir óánægju stjórnvalda á Kanaríeyjum. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis-stofnuninnar segja almenningi stafa lítil hætta af hantaveiru. Þær séu vel þekktar og ólíkar kórónuveirum.
Tedros Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, fundar með Pedroz Sanchez forsætisráðherra Spánar í dag.
Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi og var staðfest á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum að hann væri smitaður af hantaveiru. Færeyski miðillinn KVF segir hann hins vegar ekki smitaðan af sama afbrigði og fólkið sem var um borð í Hondíusi, heldur mildara afbrigði.
Hantaveirur eru hópur veira sem berast með nagdýrum og fæstar þeirra berast milli manna. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt áherslu á að þessi hópsýking sé ólík COVID-19 eða inflúensu og að þetta sé ekki upphaf heimsfaraldurs. Í tilkynningu frá embætti landlæknis fyrir helgi sagði að almenningur þyrfti ekki að hafa áhyggjur.