Höllin lækkuð um 45 milljónir

Búið er að lækka verðið Auðnukór 9 um 45 milljónir króna síðan í febrúar en eignin var aftur sett inn á sölu fyrir stuttu. Kostar húsið hún 375 milljónir króna í dag. Er þetta önnur lækkunin á húsinu.

Um er að ræða um 440 fermetra fasteign á einstökum útsýnisstað, staðsetta innst í botnlanga við opið grænt svæði ofan við golfvöll GKG.
Húsið, sem var byggt árið 2011, þykir skera sig úr fyrir fallega hönnun, gott innra skipulag og vandað efnisval, þar sem engu hefur verið til sparað. Eignin er einangruð að utan og klædd, sem gerir hana viðhaldslétta.
Samkvæmt fasteignaskrá er húsið tæplega 400 fermetrar, en raunstærð þess er meiri þar sem neðri hæð hefur verið stækkuð með nýtingu áður óútgrafins rýmis. Þar hefur meðal annars verið komið fyrir rúmgóðu vinnuherbergi og geymslum.
Utan við húsið er stórt steypt plan sem nær allan hringinn í kringum eignina. Hiti er í planinu sunnan megin, sem eykur þægindi og notagildi þess yfir vetrartímann.