Einn höfuðpaura mansalsgengis hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í Frakklandi eftir að að minnsta kosti 27 manns drukknuðu þegar gúmmíbátur sökk á leið yfir Ermarsund til Bretlands. Gengið rukkaði fólk um 3.000 evrur á mann fyrir ferðina, en aðeins tveir þeirra sem voru um borð lifðu af.
Dómurinn féll í París 30. september. Harem Ahmed Abwbaker var einn sex manna sem voru sakfelldir fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyssins, sem átti sér stað í nóvember 2021.
Sex til tíu ára fangelsisdómar
Samkvæmt bresku rannsóknarlögreglunni NCA töldu franskir saksóknarar Abwbaker einn helsta höfuðpaur gengisins sem skipulagði ferðina. Hinir fimm sem voru sakfelldir fyrir manndráp af gáleysi fengu sex til tíu ára fangelsisdóma.
Sjö til viðbótar voru sakfelldir fyrir önnur brot tengd málinu, meðal annars að aðstoða við ólöglega för fólks milli landa og aðild að skipulögðum glæpahópi. Refsingar þeirra voru allt frá sex mánaða skilorðsbundnu fangelsi upp í fjögurra ára fangelsi.
Smyglaði sér sjálfur til Bretlands
Abwbaker komst sjálfur til Bretlands í flutningabíl eftir sjóslysið. Rannsakendur NCA höfðu uppi á honum á hóteli í Cheltenham og handtóku hann í nóvember 2022.
Hann var síðan framseldur til Frakklands í júlí 2023 til að svara til saka vegna málsins.
„Þeir vildu bara fá greitt“
Í genginu voru Afganar og Kúrdar. Fólkið sem fórst var að stærstum hluta íraskir Kúrdar. Auk þeirra 27 sem vitað er að drukknuðu er fjögurra enn saknað.
Í tilkynningu NCA er ábyrgðarleysi smyglaranna lýst á eftirfarandi hátt:
„Abwbaker og samverkamenn hans skeyttu ekki um hættuna sem fylgdi því að senda ofhlaðinn og nánast ósjófæran gúmmíbát á sjó. Þeir vildu bara fá greitt. Því miður greiddu margir þeirra sem voru um borð með lífi sínu.“
Samkvæmt NCA hefur aldrei orðið meira manntjón í einni ferð báts með farþega yfir Ermarsund.