HMS vill nota hluta húsnæðisbóta til að fjármagna íbúðir í almenna kerfinu sem leigjendur ættu kost á að kaupa

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leggur til að greiðslur húsnæðisbóta verði skertar um allt að þrjá milljarða króna og fénu frekar varið til uppbyggingar íbúða fyrir tekjulægri heimili.
Þetta er meðal tillagna stofnunarinnar að markvissari stuðningi við leigjendur. Þær koma fram í nýútgefnum Vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi til leigjenda.
HMS þykir að ráðstafa megi betur húsnæðisstuðningi frá ríkinu með því að áætla húsnæðisbætur eftir leigubyrði. Þannig mætti draga úr útgjöldum þeirra um 30% eða allt að þrjá milljarða króna á ári.
Húsnæðisbætur geta leitt til hærra leiguverðs
Húsnæðisbætur auka greiðslugetu leigjenda sem getur leitt til hærra leiguverðs, samkvæmt HMS.
„Stofnframlög styðja hins vegar við framboðshlið leigumarkaðarins og leiða því að öðru óbreyttu til lægra leiguverðs til lengri tíma.“
Samkvæmt greiningu HMS leiða hærri grunnfjárhæðir húsnæðisbóta gjarnan til þess að leiguverð hækkar.
HMS telur að ef húsnæðisbætur yrðu aðeins greiddar til leigjenda sem myndu annars búa við íþyngjandi leigukostnað gætu stjórnvöld sparað um þrjá milljarða á hverju ári.
Skýrari leið til eignar fyrir leigjendur
Samkvæmt greiningu HMS myndi um fimmtungur þeirra sem þiggja húsnæðisbætur ekki búa við íþyngjandi leigukostnað fái þeir ekki bæturnar. Það er miðað við að leigukostnaður sé íþyngjandi þegar hann nemur yfir 25% af heildartekjum.
Áætla þau að þessi upphæð nýtist til að fjármagna allt að 200 íbúðir í almenna íbúðakerfinu en leigjendur innan þess gætu átt kost á að kaupa íbúðir sínar með hjálp hlutdeildarlána.
HMS leggur einnig til að búin verði til skýrari leið til eignar fyrir leigjendur í almenna íbúðakerfinu. Leigjendurnir gætu annað hvort fjármagnað kaupin með láni eða með hjálp hlutdeildarlána frá HMS auk íbúðarláns.
Vilja auka eftirlit og tengja stuðningskerfi
Í Vegvísinum eru lagðar fram tvær tillögur um aukna samþættingu húsnæðisbóta og aukið eftirlit með virkni þeirra. Þannig yrði húsnæðisstuðningur til leigjenda markvissari með bættri yfirsýn á nýtingu úrræðanna, að mati stofnunarinnar.
„HMS telur að hægt væri að einfalda umsóknar- og afgreiðsluferli bótaþega með aukinni samþættingu stuðningskerfa almennra húsnæðisbóta ríkisins og sérstaks húsnæðisstuðnings sveitarfélaga. Þannig væri hægt að tryggja jafnt aðgengi fyrir leigjendur óháð búsetu og sveitarfélagamörkum.“
HMS telur að hið opinbera þyrfti samhliða að auka gagnamiðlun sín á milli og eftirlit. Þannig væri hægt að fá heildstæðari yfirsýn á hvort stuðningurinn væri raunverulega að fara til heimila sem þurfa hann.
Vegvísirinn inniheldur einnig tvær tillögur sem snúa að aukinni samþættingu húsnæðisbóta og auknu eftirliti með virkni þeirra.