Ellefu eru særðir eftir árásir Rússlandshers á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Þar á meðal er eitt barn. Frá þessu segir Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu á samfélagsmiðlum í morgun.
Rússar hafa látið eldflaugum og sprengidrónum rigna yfir Úkraínu síðustu mánuði, en undanfarið hafa þeir notað hljóðfráar eldflaugar í ríkari mæli. Fyrstu sprengingarnar í nótt skóku Kænugarð áður en loftvarnarflautur gullu.
Zelensky segir Rússa hafa skotið 120 drónum og 12 eldflaugum á skotmörk í Úkraínu, meðal annars í Odesu, Sumy og Kharkiv. Helmingur eldflauganna var hljóðfrár.
Meðal bygginganna sem skemmdust í árásunum í nótt eru íbúðablokkir, skrifstofur og skólar.