Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er stórhuga nú þegar skammt er til kosninga og má finna ítarlegt viðtal við hana í Morgunblaðinu í dag auk þess sem hún skrifar grein í blaðið.
Þar birtist framtíðarsýn Hildar og Sjálfstæðisflokksins sem hún segir að muni ekki ná fram að ganga á einu kjörtímabili enda umfangsmiklar. Mikilvægt sé þó að hefja vinnuna strax eftir kosningar.
„Við sjáum mikla framtíðarmöguleika við sjávarsíðu Reykjavíkur. Við höfum þannig lagt fram hugmynd um Eyjabyggð. Hugmynd um hvernig Reykjavík gæti litið út eftir fimmtán eða tuttugu ár ef við höfum kjark til að hugsa lengra en til næstu vikna. Verkefnið verður ekki klárað á einu kjörtímabili, en við munum byrja á því strax,“ segir hún í grein sinni.
Bendir hún á að markmiðið sé meðal annars að opna Viðey með léttri brú fyrir þjónustu og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Grandinn verði að þorpi í sjálfu sér með sjóinn á næstum alla kanta og lifandi byggð með þjónustu og mannlífi.
„Við sjáum fyrir okkur hvernig Sundabraut opnar Geldinganesið og sunnanvert Álfsnesið getur orðið enn ein vinin við voginn. Og að Kjalarnesið byggist upp sem norðurþorp Reykjavíkur, sjálfbært samfélag með þjónustu og tækifærum mitt á milli Hvalfjarðar og Kollafjarðar.”
Þá segir hún í grein sinni að flokkurinn sjái fyrir sér að göng geti leyst samgönguvanda og opnað yfirborð þar sem þungar umferðaræðar liggja.
„Reykjavík hefur verið í kyrrstöðu of lengi. Skrifræði, tafir og framtaksleysi hafa drepið borgina í dróma. Á meðan hefur ungt fólk átt erfiðara með að eignast heimili og fjölskyldur líða fyrir sandkornin í gangverki borgarinnar. Borg þar sem allt tekur of langan tíma og einföld verkefni verða að endalausum ferlum,” segir Hildur sem vill breyta þessu.
„Ekki með loforðum um skýjaborgir heldur með ábyrgri uppbyggingu sem tekur mið af samgöngum, innviðum og lífsgæðum fólks. Við hugsum stórt en byrjum á grunninum.“
Nánar er fjallað um þessar hugmyndir í Morgunblaðinu í dag.