Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, greinir frá því að borgarfulltrúar Miðflokksins leggi til á fundi borgarstjórnar í dag að mannréttindaráð Reykjavíkur verði lagt niður.
Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísir.is.
Samkvæmt tillögunni skal finna verkefnum ráðsins annan stað í borgarkerfinu, t.d. hjá velferðarráði. Helgi skrifar:
„Það er órökrétt að það þurfi heilt fagráð að sýsla um málefni sem núverandi mannréttindaráði er ætlað að sinna. Tíma og orku kjörinna fulltrúa sem og starfsmanna er betur varið í annað.“
Helgi segir tillöguna í samræmi við tillöguflutning Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins áður og því ætti að vera meirihluti fyrir tillögunni. Helgi segir í lok greinar sinnar:
„Það hefur takmarkað gildi að tala um að minnka báknið, meira er um vert að hrinda slíkri stefnu í verk – STRAX!“
Sjá nánar hér.