Á opnu húsi í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta voru nokkur garðyrkjuverðlaun afhent, m.a. heiðursverðlaun garðyrkjunnar 2026, sem hjónin Sveinn Sæland og Áslaug Sveinbjarnadóttir, garðyrkjufræðingar á Espiflöt, fengu en þau kynntust einmitt þegar þau voru í námi í Garðyrkjuskólanum. Þau eru að sjálfsögðu mjög stolt og ánægð með verðlaunin.
„Við erum bara sæl og ánægð með þetta, mjög svo,” segir Sveinn og Áslaug bætir við. „Jú, jú, þetta er bara mjög gaman, virkilega flott”.
Hvaða þýðingu hafa svona verðlaun fyrir ykkur?
„Maður er bara stoltur af sínu, það er bara ekkert annað,” segir Áslaug.
Espiflöt, hvers konar garðyrkjustöð er það?
„Við ræktum afskorin blóm, við erum reyndar hætt að reka stöðina en við vinnum þar enn þá og höfum gaman af. Það eru eingöngu afskorin blóm, blönduð blóm og blómarækt og framleidd mikið af blómavöndum. Við erum stærst á landinu í blönduðum blómavöndum þannig að það er okkar sérhæfing í dag,” segir Sveinn.
Fjölskyldan hornsteinn rekstursins
Árið 2013 hófust kynslóðaskipti á Espiflöt yfir til þriðju kynslóðar, þegar Axel Sæland, sonur þeirra hjóna og Heiða Pálrún Leifsdóttir kona hans gengu inn í reksturinn og tóku síðan alfarið við honum nokkrum árum seinna. Ástríða fyrir ræktun og markaðssetningu blóma hefur ávallt einkennt Espiflöt og þátttaka fjölskyldunnar hefur verið einn af hornsteinum rekstursins frá upphafi.
Áslaug, gefur þú Sveini stundum blóm eða hann þér blóm?
„Við björgum okkur sjálf þegar okkur langar í blóm þá náum við okkur í blóm,” segir hún hlæjandi.
En hvernig líst hjónunum á stöðu garðyrkjunnar eins og hún er í dag ?
„Staða garðyrkjunnar er bara björt. Við erum við sömu góðu aðstæður eins og við höfum verið í gegnum tíðina og ríkisstjórnin er að sýna okkur smá áhuga og kemur inn í þetta svolítið sterk núna og er að horfa til framtíðar með okkur, þannig að mér finnst hún vera björt í dag,” segir Sveinn.