Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjagöngum ehf., félagi með það að markmiði að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar.
Fram kemur að vegna hinna sérstöku aðstæðna á Landeyjasandi, þar sem efstu lög jarðvegsins samanstandi af lausum sandi, verði byrjað á því að setja niður um fjörutíu metra langa fóðrun. Hlutverk hennar sé að tryggja fyllsta stöðugleika borholunnar áður en haldið verði dýpra niður í fastara berg.
Samkvæmt svörum frá Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga, er gert ráð fyrir að vinna við fóðrun hefjist í dag og kjarnaborunin eftir tvo eða þrjá daga.
„Þegar fóðruninni lýkur verður kjarnaborinn settur í gang, en áætlað er að bora holuna niður á allt að 300 metra dýpi. Markmiðið er að ná upp samfelldum kjarnasýnum sem munu veita vísindamönnum og verkfræðingum nákvæmar upplýsingar um gerð og styrk berglaganna undir sandinum.
Slík gagnaöflun er algjör grundvöllur þess að hægt sé að hanna örugg jarðgöng og meta heildarkostnað verkefnisins,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Haraldi að það sé tilkomumikið að sjá borinn Karl Prins standa í miðri sandfjörunni með eyjasýnina í bakgrunni.
„Með því að bora niður á 300 metra dýpi fáum við áður óþekkt gögn um jarðlögin á þessu svæði, sem færir okkur nær raunhæfu mati á jarðgöngum til Eyja,“ segir Haraldur, en reiknað er með að gangaopið yrði ofar í landinu en líkt og með kjarnaborunina í Vestmannaeyjum, sé talið mikilvægt að ná kjörnum þar sem sleppir landi til að ná sem bestu sýnum á gangaleiðinni.