Harpa Hildiberg skrifar: Hversu margir þurfa að deyja áður en stjórnvöld breyta kerfinu? - DV

Harpa Hildiberg skrifar: Hversu margir þurfa að deyja áður en stjórnvöld breyta kerfinu? - DV

Reynsla móður eftir tæplega 30 ára baráttu við fíknivanda sonar síns.

Ég er móðir manns sem hefur glímt við vímuefnavanda í tæp 30 ár. Á þessum árum hef ég séð það sama gerast aftur og aftur. Meðferð. Von. Bakslag. Neyð. Tímabundið skjól. Og síðan byrjar hringekjan upp á nýtt. Ekki vegna þess að fólk vilji ekki breytast, heldur vegna þess að kerfið nær ekki utan um raunveruleikann sem það býr við.

Íslensk fíknimeðferð hefur í grunninn verið byggð á sama módelinu síðan árið 1977. Á þeim tæpu fimm áratugum sem liðnir eru hefur heimurinn tekið stökkbreytingum. Vísindunum hefur fleygt fram, ný og lífshættulegri efni hafa herjað á göturnar og dánartíðni vegna ofskammta á Íslandi hefur hækkað með skelfilegum hraða. Samt horfum við á íslensk stjórnvöld halda dauðahaldi í módel sem mætir ekki raunveruleika dagsins í dag.

Sem móðir manns sem hefur glímt við vímuefnavanda í tæp 30 ár spyr ég: Hvað þurfa margir að deyja áður en þið þorið að breyta?

Hringekjan endalausa og hlutverk foreldra

Við fylgjum kerfinu í hvívetna: afeitrun, meðferð og dvöl á hinum ýmsu áfangaheimilum. Sú vinna sem unnin hefur verið í íslenskri fíknimeðferð er dýrmæt, en hún hentar ekki öllum. Fyrir þá sem hafa glímt við alvarlegan vanda í áratugi skilar hringekjan þeim alltaf á sama stað því það vantar „sökkulinn“. Án öruggs húsnæðis er hver meðferðarlota bara dýr frestun á næsta hruni.

Þegar raunveruleg búsetuúrræði vantar blasir harður veruleiki við. Margir enda á götunni en aðrir neyðast til að leita til foreldra sinna. Við höfum ítrekað tekið son okkar aftur inn á heimilið ekki af því að okkur langaði það, heldur vegna þess að neyðin var algjör. Þannig verða heimili foreldra óopinber neyðarúrræði ríkisins.

Sumir foreldrar hafa staðið í þessu í áratugi og eru orðnir þreyttir á álaginu, fastir í vítahring á meðan aldurinn færist yfir. Aðrir eru enn með fullt hús af börnum og álagið er gríðarlegt. Foreldrar eiga ekki að vera neyðarúrræði velferðarkerfisins.

Foreldrar eiga ekki að vera neyðarúrræði velferðarkerfisins.

Þegar kerfið bregst

Þegar einstaklingur útskrifast úr meðferð án þess að hafa öruggt húsnæði, stöðugan stuðning og raunhæft plan tekur við hættulegt tómarúm. Þá er allt það sem átti að vera endurreisn í hættu á að breytast í bið eftir næsta falli.

Þetta er ekki aðeins harmleikur fyrir þann sem glímir við fíknisjúkdóminn sjálfan. Þetta verður líka að langvarandi álagi á foreldra, systkini, börn og aðra ástvini sem standa hjá og horfa upp á sama mynstrið endurtaka sig aftur og aftur.

Reynsla mín sýnir að það að senda veikan einstakling aftur út á götu eftir meðferð er algjörlega fáránlegt.

Við sendum ekki lungnaveikan einstakling út í snjóinn að sofa og búumst við bata.

Það sér hver heilvita maður að það nær enginn heilsu við þær aðstæður, en þetta er nákvæmlega það sem við gerum við þá sem glíma við alvarlegan fíknivanda.

Þegar búsetuúrræði vantar flyst vandinn einfaldlega til. Hann endar á bráðamóttökum, í lögreglu útköllum, í fangaklefum eða inni á heimilum fjölskyldna sem hafa hvorki úrræði né faglegan stuðning til að bera svona ábyrgð.

Þannig verður úrræðaleysið dýrasta leiðin fyrir samfélagið.

Skömmin leysir ekkert

Allt of lengi hefur umræðan á Íslandi verið lituð af refsihugsun, skömm og fordómum. Fólk sem er veikt er of oft látið bera ábyrgð á kerfi sem nær ekki utan um það.

Aðstandendur finna líka fyrir þessari skömm, eins og þeir eigi að þegja, bera þetta einir og biðja ekki um of mikið.

En skömmin hefur aldrei bjargað neinum af götunni. Hún gerir aðeins eitt: hún þaggar niður í
fólki.

Afglæpavæðing þýðir að einstaklingur með neysluskammt er meðhöndlaður sem manneskja
sem þarf hjálp, ekki sem glæpamaður.

Fíkn er sjúkdómur, ekki glæpur.

Skaðaminnkun: Lífsbjörg sem er svelt

Læknisfræðileg nálgun snýst um að lágmarka skaðann: örugg neyslurými, nálaskiptaþjónusta og eftirlit.

Það er sorglegt að horfa upp á stjórnvöld svelta þau fáu úrræði sem vinna vinnuna á gólfinu.

Matthildur skaðaminnkun

Þessi samtök vinna lífsnauðsynlegt starf í stöðugri fjárhagslegri óvissu. Það er ömurlegt að fólk sem er að koma í veg fyrir bráðadauða og draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma þurfi að berjast fyrir hverri krónu á meðan það vinnur vinnu sem ríkið ætti fyrir löngu að vera búið að tryggja.

Frú Ragnheiður

Þetta frábæra starf Rauða krossins, sem heldur úti sérútbúnum bílum, er mikilvægt skaðaminnkunarúrræði og oft eina heilbrigðisþjónustan sem fólk treystir.

Lausnin sem virkar: Housing First

Finnland tók á heimilisleysi með róttækum hætti. Í stað tímabundinna lausna tryggðu þeir fólki öruggt húsnæði fyrst án skilyrða um edrúmennsku og veittu svo faglega aðstoð inni á heimilinu.

Útkoman í Finnlandi er skýr: Langtímaheimilisleysi minnkaði um nær 70%.

Kerfið sparar ríkinu um 2,2 milljónir króna á ári á hvern einstakling vegna minni þarfar á bráðaþjónustu og lögreglu.

Í löndum eins og Sviss, Tékklandi og Hollandi er lögð áhersla á skaðaminnkun og læknisfræðilega meðferð. Í Sviss hefur læknisfræðileg viðhaldsmeðferð sýnt að fólk getur haldið húsnæði og tengslum við ástvini í stað þess að vera fast í niðurlægingu götunnar.

Það er líka bati. 

Niðurlag og áskorun

Kjarni umræðunnar snýst um að hjálpa þeim sem vilja út úr fíkninni en líka að tryggja þeim sem þurfa á viðhaldsmeðferð að halda mannsæmandi og fúnkerandi líf.

Við vitum að lausnirnar eru til og þær virka. Ef Finnar gátu það, getur Ísland það líka.

Spurningin er ekki hvort við getum gert betur heldur hvort við ætlum að gera það áður en fleiri líf
glatast.

Hversu margar baráttusögur, hversu mörg dauðsföll þurfið þið að heyra af áður en þið sýnið
pólitískt þor til að stöðva hringekjuna?

Við erum hætt að biðja. Við krefjumst breytinga sem byggja á mannúð, raunsæi og vísindum. Það sem vantar er ekki þekking, heldur vilji og fjármagn til að byggja upp kerfi sem raunverulega bjargar mannslífum.

Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir

móðir með reynslu

Foreldrar á vakt
ATH!

Ég hvet alla til að styðja við Matthildi samtök um skaðaminnkun. Þeirra starf bjargar lífum daglega en þau vantar sárlega fjármagn til að halda úti þjónustunni: https://www.styrkja.is/matthildurskadaminnkun-stakir

Heimildir: Y-Foundation Finland, Housing First Europe Hub, Reykjavíkurborg, Embætti

Landlæknis, Matthildur skaðaminnkun og Rauði krossinn.

#stjórnvöld #hildiberg #skrifar #kerfinu #hversu


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/4/23/harpa-hildiberg-skrifar-hversu-margir-thurfa-ad-deyja-adur-en-stjornvold-breyta-kerfinu/

📰 Aðrar fréttir

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent - „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“ - DV
📅 30.04.2026 08:00:57 👁️ 0

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent - „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“ - DV

#heildarhagsmuna#atvinnulífsins#viðskiptaráð#landinu#kúvent
Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast
📅 30.04.2026 07:58:19 👁️ 0

Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast

#bandaríkjanna#hafnarbann#mistakast#forseti#írans
Bein út­sending: Ræða markmiðadrifði hag­kerfi í þaula - Vísir
📅 30.04.2026 07:46:59 👁️ 1

Bein út­sending: Ræða markmiðadrifði hag­kerfi í þaula - Vísir

#markmiðadrifði#útsending#hagkerfi#þaula#vísir
Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði
📅 30.04.2026 07:41:03 👁️ 1

Öryggisgæsla fyrir ósakhæfa rís á Hólmsheiði

#öryggisgæsla#hólmsheiði#ósakhæfa#fyrir
Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael - Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð - DV
📅 30.04.2026 07:30:22 👁️ 0

Vinahópur sló í gegn á sýningu stórmyndarinnar Michael - Bíóferðin hófst á sannri íslenskri hefð - DV

#stórmyndarinnar#vinahópur#bíóferðin#íslenskri#sýningu
Man arrested in south Tenerife for stalking ex-partner and fitting a tracking device to her car
📅 30.04.2026 07:05:00 👁️ 1

Man arrested in south Tenerife for stalking ex-partner and fitting a tracking device to her car

#arrested#tenerife#stalking#tracking#partner
Baldur leysir Herjólf af tímabundið - DV
📅 30.04.2026 07:04:10 👁️ 1

Baldur leysir Herjólf af tímabundið - DV

#tímabundið#herjólf#baldur#leysir
Konur stunda sjálfsritskoðun vegna vísvitandi og skipulegs stafræns ofbeldis — ofbeldið ógnar heilsu kvenna
📅 30.04.2026 07:01:13 👁️ 2

Konur stunda sjálfsritskoðun vegna vísvitandi og skipulegs stafræns ofbeldis — ofbeldið ógnar heilsu kvenna

#sjálfsritskoðun#vísvitandi#skipulegs#stafræns#ofbeldis
Regn­bogafánar, jafnaðar­geð og val­kyrju­vá í Hafnar­firði - Vísir
📅 30.04.2026 07:00:58 👁️ 1

Regn­bogafánar, jafnaðar­geð og val­kyrju­vá í Hafnar­firði - Vísir

#regnbogafánar#jafnaðargeð#hafnarfirði#valkyrjuvá#vísir
Skúrir og slydduél vestan til en bjart austan til
📅 30.04.2026 06:57:11 👁️ 1

Skúrir og slydduél vestan til en bjart austan til

#slydduél#skúrir#vestan#austan#bjart
Bæjarfulltrúar í Kópavogi sagðir ekki hafa vitað um samning bæjarins við Samtökin ’78 – Ókjörnir embættismenn skuldbundu bæinn til margra ára
Trump segist vera að í­huga að draga saman seglinn í Þýska­landi - Vísir
📅 30.04.2026 06:35:59 👁️ 1

Trump segist vera að í­huga að draga saman seglinn í Þýska­landi - Vísir

#þýskalandi#seglinn#segist#trump#íhuga
Why Industrial Workwear and PPE are the backbone of a safe business
📅 30.04.2026 06:35:00 👁️ 1

Why Industrial Workwear and PPE are the backbone of a safe business

#industrial#workwear#backbone#business#safe
Samtök gyðinga vöruðu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi
📅 30.04.2026 06:30:26 👁️ 1

Samtök gyðinga vöruðu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi

#hryðjuverkaárás#yfirvofandi#gyðinga#samtök#vöruðu
Jet2 backs Greece’s move to stop Biometric checks for British tourists
📅 30.04.2026 06:19:00 👁️ 1

Jet2 backs Greece’s move to stop Biometric checks for British tourists

#biometric#tourists#british#greece#checks
Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins - DV
📅 30.04.2026 06:00:47 👁️ 2

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins - DV

#atvinnulífsins#kúvendingar#þorsteinn#pálsson#skrifar
Einn handtekinn fyrir þjófnað og annar fyrir ólöglega dvöl í landinu
📅 30.04.2026 06:00:26 👁️ 2

Einn handtekinn fyrir þjófnað og annar fyrir ólöglega dvöl í landinu

#handtekinn#ólöglega#þjófnað#landinu#fyrir
THURSDAY WEATHER: Light cloud, sunshine and rising temperatures
📅 30.04.2026 05:59:00 👁️ 1

THURSDAY WEATHER: Light cloud, sunshine and rising temperatures

#temperatures#thursday#sunshine#weather#rising
What we know about the double stabbing in Golders Green, north London
📅 30.04.2026 05:37:58 👁️ 1

What we know about the double stabbing in Golders Green, north London

#stabbing#golders#double#london#about
Bandaríkjamenn afhenda hundruð stolinna fornminja
📅 30.04.2026 05:30:26 👁️ 1

Bandaríkjamenn afhenda hundruð stolinna fornminja

#bandaríkjamenn#fornminja#stolinna#afhenda#hundruð
BBC obtains Northamptonshire Police video of woman's arrest
📅 30.04.2026 05:29:41 👁️ 1

BBC obtains Northamptonshire Police video of woman's arrest

#northamptonshire#obtains#police#arrest#video
'We will kill you and burn your house': Council staff under attack from High Street gangs
📅 30.04.2026 05:00:04 👁️ 1

'We will kill you and burn your house': Council staff under attack from High Street gangs

#council#attack#street#house#staff
Verð á Brent-Norðursjávarolíu komið yfir 125 bandaríkjadali tunnan — Bandaríkjaforseta kynnt ný hernaðaráætlun í dag
📅 30.04.2026 04:47:09 👁️ 1

Verð á Brent-Norðursjávarolíu komið yfir 125 bandaríkjadali tunnan — Bandaríkjaforseta kynnt ný hernaðaráætlun í dag

#bandaríkjaforseta#norðursjávarolíu#bandaríkjadali#hernaðaráætlun#tunnan
Trump hótar að fækka hermönnum vegna andstöðu Merz við stríðsreksturinn í Íran
📅 30.04.2026 04:45:13 👁️ 1

Trump hótar að fækka hermönnum vegna andstöðu Merz við stríðsreksturinn í Íran

#stríðsreksturinn#hermönnum#andstöðu#trump#hótar
Oil jumps to highest price since 2022 after report Trump to be briefed on new Iran options
📅 30.04.2026 04:06:01 👁️ 1

Oil jumps to highest price since 2022 after report Trump to be briefed on new Iran options

#highest#briefed#options#report#jumps
Sérstakur erindreki Bandaríkjanna væntanlegur á ráðstefnu Viðskiptaráðs í Nuuk en ekki í boði þess
📅 30.04.2026 04:00:33 👁️ 1

Sérstakur erindreki Bandaríkjanna væntanlegur á ráðstefnu Viðskiptaráðs í Nuuk en ekki í boði þess

#bandaríkjanna#viðskiptaráðs#væntanlegur#sérstakur#erindreki
Have the royals got their mojo back from US visit?
📅 30.04.2026 03:48:53 👁️ 1

Have the royals got their mojo back from US visit?

#royals#their#visit#have#mojo
Kenya's Sabastian Sawe welcomed home in chaotic celebrations
📅 30.04.2026 03:15:16 👁️ 1

Kenya's Sabastian Sawe welcomed home in chaotic celebrations

#celebrations#sabastian#welcomed#chaotic#kenya
Ísland minna berskjaldað gegn truflun á aðfangakeðjum en brýnt að efla öryggi til framtíðar
📅 30.04.2026 03:15:13 👁️ 1

Ísland minna berskjaldað gegn truflun á aðfangakeðjum en brýnt að efla öryggi til framtíðar

#aðfangakeðjum#berskjaldað#framtíðar#truflun#ísland
Að minnsta kosti 17 flóttamenn taldir af undan strönd Líbíu
📅 30.04.2026 02:26:20 👁️ 1

Að minnsta kosti 17 flóttamenn taldir af undan strönd Líbíu

#flóttamenn#minnsta#taldir#strönd#kosti
BBC visits US and UK military base in Iraq as ceasefire continues
📅 30.04.2026 01:46:52 👁️ 1

BBC visits US and UK military base in Iraq as ceasefire continues

#ceasefire#continues#military#visits#base
Bondi Beach shooting: Royal commission interim report says gun reform should be prioritised
📅 30.04.2026 01:26:28 👁️ 1

Bondi Beach shooting: Royal commission interim report says gun reform should be prioritised

#prioritised#commission#shooting#interim#report
Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar
📅 30.04.2026 01:06:59 👁️ 1

Trump segir herkví um Íran geta varað í marga mánuði til viðbótar

#viðbótar#herkví#mánuði#trump#segir
Meta shares slide as investors weigh Big Tech's AI spending spree
📅 30.04.2026 00:48:47 👁️ 1

Meta shares slide as investors weigh Big Tech's AI spending spree

#investors#spending#shares#slide#weigh
Endometriosis: New scan technique shows promise for earlier detection
📅 30.04.2026 00:08:59 👁️ 1

Endometriosis: New scan technique shows promise for earlier detection

#endometriosis#technique#detection#promise#earlier
The city caught in the middle of the big energy shift debate
📅 30.04.2026 00:08:10 👁️ 1

The city caught in the middle of the big energy shift debate

#caught#middle#energy#debate#shift
Big US tech stocks swing as investors probe AI spending
📅 29.04.2026 23:53:16 👁️ 1

Big US tech stocks swing as investors probe AI spending

#investors#spending#stocks#swing#probe
Ísraelsher stöðvar för 80 báta
📅 29.04.2026 23:52:27 👁️ 1

Ísraelsher stöðvar för 80 báta

#ísraelsher#stöðvar#báta
Interest rates expected to be held as uncertainty over impact of Iran war continues
📅 29.04.2026 23:01:04 👁️ 1

Interest rates expected to be held as uncertainty over impact of Iran war continues

#uncertainty#continues#interest#expected#impact
Ein­huga um að lengja gildis­tíma öku­skír­teina - Vísir
📅 29.04.2026 23:00:14 👁️ 1

Ein­huga um að lengja gildis­tíma öku­skír­teina - Vísir

#ökuskírteina#gildistíma#einhuga#lengja#vísir
US singer D4vd bought tools online to dispose of girl's body, prosecutors say
📅 29.04.2026 22:59:30 👁️ 1

US singer D4vd bought tools online to dispose of girl's body, prosecutors say

#prosecutors#dispose#singer#bought#online
Oil price briefly hits $120 after reports of 'extended' Iran blockade
📅 29.04.2026 22:49:19 👁️ 1

Oil price briefly hits $120 after reports of 'extended' Iran blockade

#extended#blockade#briefly#reports#price
Baldur fer til Eyja
📅 29.04.2026 22:37:37 👁️ 1

Baldur fer til Eyja

#baldur#eyja
Margir í óheilbrigðu sambandi án þess að átta sig á því
📅 29.04.2026 22:26:04 👁️ 1

Margir í óheilbrigðu sambandi án þess að átta sig á því

#óheilbrigðu#sambandi#margir#þess#átta
Baldur til Eyja - Vísir
📅 29.04.2026 22:25:58 👁️ 1

Baldur til Eyja - Vísir

#baldur#vísir#eyja
Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega
📅 29.04.2026 22:15:07 👁️ 1

Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega

#bílstjórar#miðbæinn#kveðja#trega
Sel­tjarnar­nes heldur á­fram að tapa - Vísir
📅 29.04.2026 22:14:02 👁️ 1

Sel­tjarnar­nes heldur á­fram að tapa - Vísir

#seltjarnarnes#heldur#áfram#vísir#tapa
„Þetta er gríðar­legt högg fyrir þessi minni bæjar­fé­lög“ - Vísir
📅 29.04.2026 22:13:33 👁️ 1

„Þetta er gríðar­legt högg fyrir þessi minni bæjar­fé­lög“ - Vísir

#gríðarlegt#bæjarfélög#þetta#fyrir#þessi
Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu - DV
📅 29.04.2026 21:59:10 👁️ 1

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu - DV

#kaupmannsins#vesturbæ#húsnæði#horninu#sölu
Police body cam shows moment Golders Green suspect Tasered
📅 29.04.2026 21:53:51 👁️ 1

Police body cam shows moment Golders Green suspect Tasered

#golders#suspect#tasered#police#moment