Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hann bauð tveimur litlum drengjum í Disneyland í París. Þeir áttu að fljúga heim til Íslands í gær.
„En Icelandair aflýsti fluginu frá París eins og mörgum öðrum síðustu daga, vegna þess að flugmenn á ofurlaunum eru í skæruhernaði gegn félaginu, en ofan á það leggst furðulegur milljarðaskattur frá ESB (ETS gjaldið), en honum er ætlað að fá fólk til að taka lestir frekar en flugvélar, þótt engar lestir gangi auðvitað frá Íslandi til meginlandsins,“ segir Hannes á Facebook. Hann er ekki par sáttur.
„Nú eru drengirnir tveir strandaglópar í París. Hvar er samgönguráðherrann? Ætlar hann að láta þennan fámenna hóp flugmanna á ofurlaunum í samstarfi við skriffinna og skattheimtumenn í Brüssel á (skattfrjálsum) ofurlaunum ganga af einni lífæð Íslands dauðri? Icelandair er stórkostlegt kraftaverk. Á að leggja það að velli, án þess að ríkisstjórnin geri neitt? Hver á að gæta almannahagsmuna?“
Mikilvægt að hafa sæti við borðið
Umræðan var fljót að fara að snúast um aðild Íslands að Evrópusambandinu en Hannes er alls ekki hlynntur því. „Við verðum bersýnilega að ganga í sambandið til að fá þessum fáránlega skatt afnuminn!,“ sagði hagfræðiprófessorinn Gauti B. Eggertsson. „Þetta sýnir hversu mikilvægt er að hafa sæti við borðið. Hitt er ömurlegt að sjá að svona verkföll er að bitna á strákunum þínum.“
Hannes vill hreinlega ekki að þessi skattur sé greiddur. „Við eigum að neita að greiða þennan skatt. Hann á ekki við á Íslandi, eins og Frosti Sigurjónsson hefur margoft bent á. Og þetta er einmitt hættan við aðild: að við þurfum að fylgja reglum, sem eiga alls ekki við okkar sérstöku aðstæður.“
Er þekki ekki bara frjálsi markaðurinn?
Stærðfræðingurinn Einar Steingrímsson nýtti tækifærið til að stríða Hannesi fyrir skoðanir sínar á frjálsum markaðsviðskiptum. „Er þetta ekki bara hinn frábæri frjálsi markaður að verki? Flugmenn vilja ekki selja tíma sinn á því verði sem félagið vill borga,“ sagði Einar.
Hannes er hins vegar vel að sér í slíkum fræðum. „Er það frjáls markaður að setja á skatt, sem á sér enga samsvörun í íslenskum veruleika? eða að múlbinda vinnumarkaðinn, svo að Icelandair geti ekki ráðið sér flugmenn alþjóðlega? Þú veist greinilega ekki, um hvað þú ert að tala.“
Nóg til af flugmönnum í heiminum
Ólafur Arnarsson gerði athugasemd við að ríkisstjórninni sé blandað inn í kjaradeilur Icelandair og flugmenn. Hannes var fljótur að svara því: „Auðvitað á ríkisstjórnin að grípa inn í, þegar stærsta flugfélag landsins riðar til falls. Það á að neita að greiða þennan ETS skatt og rýmka heimildir Icelandair á vinnumarkaði.“
Kolbrún nokkur sagði: „Þetta er ákvörðun stjórnar félagsins en ekki flugmanna sem eru ekki lengur tilbúnir að selja frelsi sitt. Það er nefnilega ekki allt falt fyrir peninga!“ Hannes kann leiðir að því: „Þá þarf félagið að leita á alþjóðlegan markað. Það er nóg af flugmönnum í heiminum.“