Lögreglan í Vestmannaeyjum naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í aðgerð á Fífilgötu í gærkvöldi. Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn í Eyjum segir að lögreglu hafi borist tilkynning um aðila í hættulegu ástandi. Var því óskað eftir aðstoð sérsveitar sem kom frá Reykjavík.
Einstaklingurinn var handtekinn með eggvopn í fórum sínum. Stefán segir málið stutt á veg komið og að atvikið verði skoðað. Sérsveit ríkislögreglustjóra flutti einstaklinginn með sér til Reykjavíkur.
Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum.