Er þetta meðal þess sem fram kemur í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun en á sama varðsvæði barst tilkynning um aðila sem neitaði að borga fyrir leigubílaferð. Málið var afgreitt á vettvangi.
Vakthafandi lögreglufulltrúum á stöð eitt, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, barst tilkynning um aðila sem var að reyna að komast inn í íbúð í hverfi 104 en þegar lögreglu bar að garði var ekkert um að vera og enginn innbrotsþjófur.
Í hverfi 105 hafði einhver tekið sig til og spreyjað á útidyrahurð en ekki liggur fyrir hversu margir voru að verki og hefur enginn verið handtekinn vegna málsins, er fram kemur í dagbókinni.
Fíkniefni fundust í bifreið í hverfi 110, sem er á varðsvæði lögreglustöðvar 4, en þar hafði ökumaður verið stöðvaður í eftirliti og kom í ljós að hann dvaldi í landinu án dvalarleyfis. Sá var vistaður í fangaklefa.