Kristrún og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, eru á allsherjarþinginu. Kristrún ræddi í gær við Antonio Guterres, fráfarandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þá tók hún einnig þátt í viðburði á vegum leiðtoga Brasilíu, Kanada, Kenía og Evrópusambandsins um mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðasamstarf og flutti lokaávarp á hliðarviðburði um loftslagsmál.
Á vef Stjórnarráðsins segir að Kristrún og Þorgerður verði í dag viðstaddar setningu allsherjarþingsins og Kristrún muni svo í kvöld sækja móttöku Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna.
Haft er eftir Þorgerði Katrínu að innrás Rússa í Úkraínu, ástandið í Mið-Austurlöndum og mannréttindi setji sterka mynd á dagskrá vikunnar í New York.
„Ísland tekur virkan þátt í umræðunum hér í New York í vikunni og leggur þannig sín lóð á vogarskálarnar. Þó að sótt sé að alþjóðalögum og alþjóðakerfinu finn ég fyrir skýrum ásetningi velflestra ríkja heims að varðveita þau gildi og þær stofnanir sem vel hafa reynst undanfarin áttatíu ár.“
Þorgerður fundaði í gær með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á þeim fundi komu saman utanríkisráðherrar sjö norðurslóðaríkja.
Hún hitti einnig Malölu Youzafzai, handhafa friðarverðlauna Nóbels, og ræddi við hana um réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan.
Þorgerður hélt einnig ávarp á hliðarviðburði kjarnahóps um réttindi hinsegin fólks sem líkt-þenkjandi ríki hjá Sameinuðu þjóðunum halda úti og hún sat líka fund um þróunarmál sem Írar boðuðu til.