Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á miðvikudag að taka 8,2 milljarða króna að láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Einnig var húsnæðisskrifstofu bæjarins heimilað að taka 150 milljónir króna að láni hjá sjóðnum. Ætlunin með lántökunni er að fjármagna ýmsar framkvæmdir meðal annars við nýtt bókasafn bæjarins en fram kemur í fundargerð að lóðasala hafi gengið hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir og þar með hafi tekjur bæjarins verið þeim mun minni.Heimild fyrir lántökunni var til staðar í fjárhagsáætlun þessa árs.
Hafnarfjarðarbær tekur hátt lán - Lóðasala gengið illa