Breska ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að banna innflutning á dísilolíu og flugvélaeldsneyti sem unnið er úr rússneskri hráolíu fyrir 1. janúar 2027. Bannið er hluti af þvingunaraðgerðum sem breska ríkisstjórnin beitir stjórnvöld í Rússlandi vegna innrásarstríðsins í Úkraínu.
Í maí greindi breska ríkisstjórnin frá því að til stæði að fasa eldsneyti sem unnið er úr rússneskri hráolíu í olíuhreinsistöðvum utan Rússlands. Það yrði gert í skrefum og að aðgerðirnar þyrftu að bjóða upp á sveigjanleika vegna framboðsskells sem stríðið í Mið-Austurlöndum hefur haft í för með sér.
Ráðagerðinni var ekki tekið gagnrýnislaust. Evrópusambandið brást við með því að segja að nú væri ekki réttur tími til að slaka á þvingunaraðgerðum gegn stjórnvöldum í Moskvu.
Bannið gæti tekið gildi fyrr
Chris Bryant, viðskiptaráðherra í bresku stjórninni, segir að með því að setja lokadagsetningu á bannið sendi Bretar skýr skilaboð um að áfram verði Rússar beittir mesta mögulega þrýstingi.
Tímabundið leyfi fyrir innflutningi á eldsneytinu verður endurskoðað á tveggja vikna fresti. Bryant segir leyfið fyrir innflutningi verða afturkallað um leið og það er talið gerlegt. Það gæti því gerst fyrr en ella. Innflutningi verði hætt í síðasta lagi 1. janúar á næsta ári.