Gul reiðhjól hafa verið sett upp nærri þeim stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem alvarleg umferðarslys hafa orðið á undanförnum vikum. „Þeim slysum hefur farið fjölgandi í haust og vetur og því full ástæða til að bregðast við þeirri þróun,“ segir í tilkynningu Reiðhjólabænda, samtaka reiðhjólaeigenda.
Hjólin eru sjónræn einkenni, hluti vitundarvakningar fyrir bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem Reiðhjólabændur standa að með stuðningi Samgöngustofu, Sjóvár, FÍB, ÍSÍ og flestra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt tilkynningunni er markmiðið að fá bílstjóra meðal annars til að nema staðar á gangbrautum og rauðum ljósum, aka á löglegum hraða, láta símann eiga sig og vera meðvitaðir um annað fólk í umferðinni. Gulu hjólin eiga að hvetja til varkárni þar sem leiðir ólíkra vegfarenda skerast.