Grunnskólanemendum á Akureyri hefur fækkað þrátt fyrir að bæjarbúum hafi fjölgað. Skýringarinnar er helst að leita í smærri árgöngum barna að mati Árna Konráðs Bjarnasonar, rekstrarstjóra á fræðslu- og lýðheilsusviði Akureyrarbæjar.
Í samtali við vefmiðilinn Akureyri.net segir Árni þetta lýðfræðilega þróun, það fæðist einfaldlega færri börn. Árgangarnir 2018, 2019 og 2020 séu tiltölulega litlir. Skiljanlegt sé að nemendum fækki því þeir árgangar barna sem eru að hefja skólagöngu séu fámennari en þeir sem eru að útskrifast.
Í ár hafi 300 börn lokið grunnskólagöngu en aðeins 220 hafið hana. Árni segir þetta þó sveiflukennt, að á næsta ári stefni í að stærri árgangur komi inn en útskrifist og svo snúist hlutfallið aftur við árið þar á eftir. Lundarskóli er fjölmennasti grunnskóli Akureyrar með 480 nemendur en skólinn í Hrísey sá minnsti með sextán.