Hann bauð Sjöfn meðal annars upp á bjórgrillaðan Gaggalagú með leynisósunni sinni, heimagerðri BBQ-sósu sem toppar allt. Með réttinum bar hann fram ferskt endívusalat með rabarbara, burrata-osti og pistasíum sem steinlá með kjúklingnum.
„Hugi bauð mér upp á besta grillaða kjúkling sem ég hef smakkað. Hann var einstaklega meyr og bragðgóður. Aðferðin við grillunina, bjórinn og heimagerða BBQ-sósan lyftu réttinum upp á annað stig. Ég var alveg heilluð og endívusalatið með rabarbaranum og burrata-ostinum steinlá með Gaggalagúnum, eins og Hugi kallar réttinn.“
Í eftirrétt bauð Hugi upp á ómótstæðilega ljúffenga samsetningu af grilluðum tómötum og jarðarberjum með skyrmús og Szechuan-sírópi. Fullkomið tvist fyrir bragðlaukana og tilvalið þegar gleðja á gesti með eftirminnilegum hætti.
„Þegar heill kjúklingur er grillaður er langbest að nota kjúklingastand úr keramiki. Þá er hægt að heilgrilla kjúklinginn án þess að hann snerti grillgrindina og brenni,“ segir Hugi.
Þáttinn og allar uppskriftirnar má finna hér fyrir neðan. Uppskriftirnar miðast við fjóra og allt hráefnið fæst í Krónunni.
Bjórgrillaður Gaggalagú með BBQ-sósu
1 meðalstór ferskur kjúklingur
Kryddblandan hans Huga, sjá uppskrift fyrir neðan
BBQ-sósa, uppskrift fyrir neðan
1 (330 ml) pylsubjór eða annar uppáhaldsbjór
Kjúklingastandur úr keramiki (fæst t.d. hjá Kamadobono.is)
Kryddun
2 tsk. reykt paprikuduft
2 tsk. hvítlauksduft
2 tsk. laukduft
1½ tsk. sjávarsalt
1 tsk. svartur pipar
1 tsk. púðursykur
BBQ-sósa, gljái
200 ml góð BBQ-sósa
1 msk. hunang
1 msk. smjör
1 tsk. Dijon sinnep
1 tsk. eplaedik
½ tsk. eplasafi
½ tsk. sojasósa
½ tsk. Worcestershire-sósa
½ tsk. reykt paprikuduft
Örlítill svartur pipar
Aðferð:
Kveikið á grillinu og náið upp háum hita. Byrjið á því að meðhöndla kjúklinginn og munið að nota hanska. Gott er að velja ferskan kjúkling.
Setjið saman hráefnin fyrir kryddblönduna og blandið vel saman. Kryddið síðan allan kjúklinginn með kryddblöndunni. Blandið síðan saman hráefninu fyrir BBQ-sósuna og hrærið vel saman. Takið síðan pensil og berið BBQ-sósuna vel á allan kjúklinginn.
Setjið síðan standinn á grillið og hellið bjór ofan í. Setjið loks kjúklinginn ofan á standinn með bjórnum í. Hafið kjúklinginn á grillinu í um það bil klukkustund eða lengur, það fer eftir stærð kjúklingsins, en hann þarf að ná réttum kjarnhita.
Miðað er við að kjúklingurinn sé tilbúinn þegar kjarnhitinn hefur náð 75°C. Á meðan kjúklingurinn grillast er ráð að opna grillið af og til og bera á hann meiri BBQ-sósu.
Endívusalat með rabarbara, burrata-osti og pistasíum
5 rauð endívuhöfuð, rifin í lauf
3 burrata-ostar, rifnir
2-3 msk. rabarbara- og tómatsulta, sjá uppskrift fyrir neðan
2-3 msk. saltaðar pistasíuhnetur, sjá uppskrift fyrir neðan
Rabarbara- og tómatsulta
500 g kirsuberjatómatar
100 g jarðarber
100 g rabarbari
80 g sykur
40 g ferskur sítrónusafi
Aðferð:
Takið til allt hráefnið og setjið í pott.
Sjóðið niður um 20% og maukið síðan saman með töfrasprota.
Saltaðar pistasíuhnetur
100 g pistasíuhnetur
12 g vatn (ca. 2½ tsk.)
5 g sjávarsalt (ca. 1 tsk.)
Aðferð:
Hitið ofn í 160 °C. Byrjið á því að setja vatn í glas eða könnu og hrærið saltinu út í. Veltið pistasíuhnetunum upp úr saltvatninu. Dreifið á bökunarpappír. Ristið við 160°C í 8–10 mínútur, þar til þær eru þurrar. Látið kólna og saxið gróft yfir salatið.
Samsetning
Takið til fallega grunna skál. Setjið rabarbara- og tómatsultuna í botninn á skálinni. Rífið burrata-ostinn yfir. Raðið síðan endívublöðunum óreglulega yfir réttinn. Dreifið síðan söltuðu pistasíuhnetunum yfir. Berið fram með kjúklingnum.
Eftirréttur
*Gott er að gera skyrmúsina og sírópið daginn fyrir notkun.
Grillaðir tómatar og jarðarber með skyrmús og Szechuan-sírópi
Tómatar eftir smekk, t.d. eitt box af kirsuberjatómötum
Jarðarber eftir smekk, t.d. eitt stórt box
Hindber eftir smekk, t.d. eitt box
Nýtið hitann á kolagrillinu eftir að hafa grillað aðalréttinn. Setjið tómata, jarðarber og hindber á kolagrillið og grillið í nokkrar mínútur.
Skyrmús
200 g hvítt súkkulaði
200 g rjómi
200 g skyr
1 sítróna
1 vanillustöng
Aðferð:
Gott er að gera skyrmúsina áður en grillað er, jafnvel kvöldið fyrir notkun. Finnið til lítinn pott til að nota fyrir rjómann. Byrjið á því að hita rjómann að suðu. Kljúfið vanillustöngina og skafið fræin út í blönduna.
Brjótið síðan súkkulaðið í skál. Hellið síðan rjómanum yfir súkkulaðið og leyfið því að bráðna, gott er að hræra aðeins í blöndunni. Blandið síðan rjóma- og súkkulaðiblöndunni við skyrið og kælið niður.
Þeytið blönduna síðan upp og bætið smá rifnum sítrónuberki út í blönduna.
Szechuan
Szechuan-piparsíróp
500 g sykur
500 g vatn
Szechuan-pipar eftir smekk
1 kanilstöng
Aðferð:
Piparsírópið má gera daginn áður ef vill.
Setjið allt hráefnið saman í hæfilega stóran pott og sjóðið saman við vægan hita.
Samsetning
Finnið síðan til fallegar skálar sem þið viljið bera eftirréttinn fram í. Setjið grilluðu tómatana, jarðarberin og hindberin saman í skál ásamt skyrmúsinni og dreifið smá piparsírópi yfir.
Berið fram og njótið.