Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins gagnrýnir það markmið ríkisstjórnarinnar að tekjur ríkissjóðs af umferð og eldsneyti eigi að nema 1,7% af vergri landsframleiðslu (VLF).
„Segjum bara að risafyrirtæki flytji höfuðstöðvar sínar til Íslands, eiga þá skattar á akstur ökutækja að hækka um 1,7% af veltu þess félags? Þetta er einhver hugsanavilla hjá núverandi stjórnvöldum,“ segir Bergþór.
Lét Bergþór orðin falla í samhengi við innviðafélag sem lagt er til að verði stofnað, samkvæmt frumvarpi Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra, en eitt af meginhlutverkum félagsins yrði að innheimta veggjöld vegna notkunar samgöngumannvirkja. Telur minnihluti fjármálanefndar það ekki tryggt að veggjöld sem innheimt yrðu af notkun eins samgöngumannvirkis yrðu ekki notuð til að fjármagna önnur samgöngumannvirki. Önnur umræða um frumvarpið stendur yfir á Alþingi.
Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að félagið taki til sín ýmis verkefni, til að mynda Sundabraut og Fljótagöng, og fjármagni þau og reki. Er í greinargerð með frumvarpinu því jafnframt velt upp að afhenda félaginu samgöngumannvirki á borð við Hvalfjarðargöng og hefja þar gjaldtöku að nýju.
Minnihluti fjárlaganefndar leggur til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar, enda þurfi að vinna það betur. Þó sé fyrirætlunin með frumvarpinu góð og mögulegt að finna fleti á því til að útfæra málið á þann hátt að samstaða náist um það.
Segir í nefndaráliti minnihlutans að óljóst sé hvernig verkaskipting eigi að vera á milli Vegagerðarinnar, Betri samgangna ohf. og innviðafélagsins. Ljóst sé að innviðafélagið muni eiga í samkeppni um starfsfólk við Vegagerðina og óljóst hvernig það eigi að leiða til stórátaks í samgöngumálum.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.