Fyrrverandi samgönguráðherra Spánar, Jose Luis Abalos, hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir spillingu.
Hann var sakfelldur fyrir fjölda brota, meðal annars glæpastarfsemi, mútugreiðslur og fjárdrátt, tengdum samningum sem spænska ríkið gerði um kaup á heilbrigðisvörum á borð við grímur í kórónuveirufaraldrinum.
Dómurinn er sá fyrsti í röð hneykslismála sem hafa skekið Sósíalistaflokk forsætisráðherrans Pedro Sanchez. Hann komst til valda fyrir átta árum og hét því að útrýma spillingu. Hann hefur hann sjálfur aldrei verið orðaður við spillingarbrot en hið sama er ekki hægt segja um samstarfsmenn hans.
Aðstoðarmaður samgönguráðherrans fyrrverandi, Koldo Garcia, var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir sinn hlut í brotunum.
Viðskiptamaðurinn Victor de Aldama hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm, en hann var skilorðsbundinn vegna samvinnufýsi hans við uppljóstrun brotanna, að því er segir í frétt Reuters.