Gylfi Magnússon, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir yfirvofandi verkfall flugvirkja hjá Icelandair geta valdið verulegum skaða ef af því verður.Flest bendir til þess að ótímabundið verkfall hefjist á miðnætti í kvöld en í gær var greint frá því að Icelandair hefði hafnað boði Flugvirkjafélagsins um frestun á verkfallsaðgerðum. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag nefndi Icelandair að frestun myndi aðeins auka tjón aðila og þá væri ekki hægt að fresta verkfalli einhliða með minna en þriggja daga fyrirvara.
Fyrrum ráðherra ómyrkur í máli: „Afleitt ef af verður og getur valdið mjög miklu tjóni mjög hratt“