Fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og ESB verður ekki í hátíðasal Háskóla Íslands eins og auglýst hafði verið. Rektor segir salinn ekki ætlaðan viðburðum sem eru pólitískir í eðli sínu og að bókun hans hafi ekki fylgt upplýsingar um að félagasamtök kæmu að fundinum.
Fyrirlestur dr. Baudenbachers, sem verður 10. ágúst, var auglýstur á heilli síðu í Morgunblaðinu í gær. Í auglýsingunni kemur fram að rædd verði ýmis álitaefni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og fundarstjóri sé Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Þá verði bók dr. Baudenbachers og dr. Lauru M. Baudenbacher til sölu á staðnum.
Neðst í auglýsingunni er merki samtakanna Áfram Íslands og Almenna bókafélagsins og fram kemur að fyrirlesturinn sé í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, staðfestir í samtali við fréttastofu að fundurinn fari ekki fram í hátíðarsalnum, en DV greindi fyrst frá þessu.
Silja Bára segir Ragnar Árnason, prófessor emeritus við hagfræðideild, hafa bókað salinn. Hún segir að í upplýsingum um bókunina hafi komið fram að tilefni hennar væri að dr. Baudenbacher hafi fallist á að halda opinberan fyrirlestur hér á landi um málefni ESB og að fyrirlesturinn hefði augljósa skírskotun til lögfræði, hagfræði og stjórnmálafræði.
Á miðvikudag hafi starfsmaður bent stjórn Háskólans á aðkomu Áfram Íslands að fundinum og svo hafi auglýsing birst á síðu Morgunblaðsins í gær. Silja Bára segir að þeim hafi fundist ástæða til að færa viðburðinn úr hátíðarsalnum og bjóða skipuleggjendum annan fundarstað innan háskólans þar sem aðrar reglur gilda um viðburði.
„Það er fyrrverandi starfsmaður sem biður um salinn, en auglýsingin finnst mér gefa til kynna að það sé ekki bara þessi starfsmaður eða þetta rannsóknarsetur sem stendur á bak við þetta. Það er yfirvofandi mjög pólitísk atkvæðagreiðsla og við teljum ekki eðlilegt að nota salinn í þeim tilgangi,“ segir Silja Bára.
Ekki á vegum Áfram Íslands, en málið í vinnslu
Þegar fréttastofa hafði samband við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann stjórnar Áfram Íslands, til að kanna hvort skipuleggjendur ætluðu að þiggja annan húsakost Háskólans fyrir fyrirlesturinn sagði hann að málið væri enn til úrlausnar hjá þeim sem standi að fyrirlestrinum, sem sé ekki Áfram Ísland.
„Það sem mér finnst mestu vert er að háskólinn ætli að meina þessum fyrirlesara að vera í hátíðarsalnum,“ segir Halldór Benjamín.
Spurður hvers vegna merki Áfram Íslands sé á auglýsingunni segir Halldór að samtökin séu að vekja athygli á ráðstefnunni. Hann segir Háskólann og Rannsóknarsetrið vera með samning um notkun hátíðarsalarins.
„Málið er bara í vinnslu þannig ég myndi segja að þetta væri ekki tímabært. Vonandi bara leysist þetta farsællega og við fáum hátíðarsalinn.“