Uppselt var á Vísinda- og fræðsludag HSN í Hofi í gær og fullt út úr dyrum þegar fréttastofu bar að garði. Þetta var í fyrsta sinn sem HSN stendur fyrir slíkum viðburði á Akureyri en ekki það síðasta.
Markmið dagsins hjá HSN var að starfsfólk og nemar í greininni fengju tækifæri til þess að kynnast nýjustu rannsóknum og lausnum í heilbrigðisþjónustu. Þróunin í heilbrigðisgeiranum er ör og vill HSN ekki vera eftirbátur annarra í þeirri þróun, að sögn Jóns Helga Björnssonar, forstjóra HSN, sem vill gera starfið úti á landi aðlaðandi fyrir alla landsmenn.
„Það eru 11 erindi frá okkar starfsmönnum þar sem þau fara yfir rannsóknir og nýjungar sem við erum að innleiða í starfseminni frá okkur. Hér eru á annað hundrað manns, bara gríðarlega vel sótt og sýnir í rauninni bara hvað þetta er öflugt starf sem er verið að reka hérna á Norðurlandi,“ sagði Jón.
Fjölbreytt erindi flutt af starfsmönnum HSN
Skipuleggjendur dagsins voru afskaplega ánægð með hvernig til tókst en flóra fyrirlestra var fjölbreytt þar sem læknar, næringarfræðingar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar fluttu erindi. Viðburðurinn sýndi hversu mikið framfarastarf væri unnið á landsbyggðinni:
„Menn sjá í rauninni bara hvað er í gangi og hversu öflugt starfið er. Þetta gefur manni líka tilefni til þess að vera í rannsóknum og geta kynnt það fyrir sínum kollegum, sem við teljum vera mjög mikilvægt,“ sagði Jón Helgi Björnsson.