Rafmagnslaust varð milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur rétt fyrir klukkan eitt. Starfsmenn Rariks voru fljótir að gera við bilunina og tíu mínútum síðar var rafmagn komið á aftur.
Samkvæmt upplýsingum frá Rarik mun fugl hafa flogið á línu í dreifikerfinu og valdið rafmagnsleysinu.