Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn framlengdu í hádeginu meirihlutasamstarf sitt í bæjarstjórn Múlaþings. Málefnasamningur þeirra var undirritaður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í hádeginu.
Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins, segir að stærsta hagsmunamálið sé að berjast fyrir samgöngubótum. Í málefnasamningnum er sér kafli um hagsmunabaráttu sveitarfélagsins út á við.
„Samstarfið gekk rosalega vel á síðasta kjörtímabili og meirihlutinn bætir við sig. Sjálfstæðismenn bæta við sig manni. Það var auðséð að við myndum hefja fyrsta samtal. Það gekk ljómandi vel.“