Vegagerðin stefnir á að bjóða út 210 metra langa netbogabrú yfir Djúpafjörð í Austur-Barðastrandarsýslu í næstu viku. Undirbúningur að smíði hennar hefur staðið yfir um langt skeið og teygir anga sína allt til 1996 þegar svæðisskipulag var samþykkt. Nú, 30 árum síðar, er farið að glitta í verklok. Þessar framkvæmdir stytta veginn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um rúma 50 kílómetra.
Verkið hefur tafist töluvert frá því að framkvæmdir hófust árið 2020. Áætlað var að þeim lyki 2024, og svo 2026.
„Já, þetta er mjög langur tími og hefur tafist hreint ótrúlega mikið sökum alls kyns kærumála. En ástæðan fyrir að við náðum ekki að klára þetta 2026 eða í ár eins og við höfum að mestu leyti verið að stefna á er að þetta er flókið verk að fara þessa leið,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Ástæðurnar margvíslegar
Ástæður tafanna eru margvíslegar og meðal annars raktar til veðurs og tíðarfars á Vestfjörðum. „Það eru margar ástæður fyrir því. Þessi brú er náttúrulega óvenjuleg hún er bæði 210 metra löng bogabrú og við höfum ekki reist svona langa bogabrú á Íslandi áður,“ segir hann.
Hugmyndir eru uppi um að setja brúna saman erlendis en það skýrist þegar útboði lýkur.
Íhuga hvaða aðferðir eru mögulegar til þess að reisa brúna. Það eru möguleikar til í því að bæði byggja brúnna erlendis í heilu lagi og flytja hana hingað á pramma eða byggja hana á staðnum og ýta henni svo yfir. Þetta þýðir að verktíminn er lengri