Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar - Vísir
Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar - Vísir
📅 2026-04-30 18:33:45👁️ 14 lesið
Frá árinu 2019 hefur íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um áttatíu í hverri viku og skráðum ökutækjum um sextíu í hverri viku. Álagið á gatnakerfið hefur því aukist jafnt og þétt á sama tíma og stórar samgöngubætur hafa látið bíða eftir sér.
Tölur, sem verkfræðistofan Efla tók saman af Tom Tom, fyrir árið 2025 sýna einnig að hægt hefur enn frekar á umferð. Að jafnaði var hægt að komast 6,9 kílómetra á fimmtán mínútum, sem er skemmri vegalengd en árið áður. Tíu kílómetra akstur tók að meðaltali 21 mínútu og 49 sekúndur og meðalhraðinn mældist 22 kílómetrar á klukkustund.
Tveir áratugir frá upphafi til fyrsta áfanga
Vinnan við samgöngusáttmálann á rætur að rekja til svæðisskipulags sem hófst árið 2012. Sáttmálinn sjálfur var síðan undirritaður árið 2019 en verkefnið hefur frá þeim tíma farið í endurskoðun. Gangi núverandi áætlanir eftir verður fyrsta áfanga Borgarlínunnar ekki lokið fyrr en árið 2031.Þá verða liðin um tuttugu ár frá því undirbúningurinn hófst. Á þeim tíma verður jafnframt búið að kjósa sex sinnum til Alþingis og fimm sinnum til sveitarstjórna.Konráð Guðjónsson hagfræðingur fór yfir þessa þróun á ráðstefnunni Greið leið – Hugmyndir óskast í vikunni. Þar fjallaði hann bæði um vaxandi tafir og þann kostnað sem þær leggja á samfélagið.
Biðin sé dýr
Konráð segir að umferðin hafi aukist mikið en að hún fylgi engu að síður að stórum hluta þeirri íbúaþróun sem hafi átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna verði að horfa raunsætt á þróunina þegar ákvarðanir séu teknar um innviði og samgöngur.Að hans mati sýna útreikningarnir svart á hvítu hversu dýr biðin sé.„Þetta eru bara veruleg verðmæti sem við erum á einhvern hátt að sóa með því að sitja föst í umferð.“Samkvæmt mati Konráðs nemur kostnaður samfélagsins vegna tafanna um og yfir hundrað milljörðum króna á ári. Það jafngildir um 34 til 40 þúsund krónum á mann á mánuði og um 150 þúsund krónum fyrir fjögurra manna fjölskyldu á mánuði.
Vill hraðari lausnir samhliða stærri framkvæmdum
Konráð segir að sú staða sem nú sé uppi kalli ekki aðeins á áframhaldandi vinnu við stór verkefni heldur líka á úrræði sem hægt sé að hrinda hraðar í framkvæmd.„Ég held að við þurfum, af því að þetta gengur allt saman svo hægt, að reyna að fara sem fljótvirkastar leiðir.“Í því samhengi nefnir hann meðal annars virkari ljósastýringu og einfaldari úrbætur þar sem lítill ágreiningur sé um leiðir. Einnig bendir hann á að skoða mætti stokka undir lykilgatnamót, sem geti verið minna inngrip en stærri mannvirki og taki jafnframt minna pláss.Hann segir líka mikilvægt að hlusta betur á það sem hægt sé að gera hratt og skili raunverulegum árangri í daglegu lífi fólks, án þess að bíða árum saman eftir stærstu framkvæmdunum.
Samgöngusáttmálinn megi ekki verða fastur rammi
Að mati Konráðs þarf jafnframt að líta á samgöngusáttmálann sem lifandi plagg fremur en óumbreytanlegan ramma, sérstaklega þegar forsendur breytast og tafir safnast upp.„Það má ekki hugsa til þess að fimmtán ára verkefni eða tuttugu ára verkefni sé bara fast eins og stjórnarskrá. Þetta hlýtur að vera lifandi plagg.“Hann segist leyfa sér að efast um ábatann af sumum þeim forsendum sem samgöngusáttmálinn byggi á, meðal annars vegna þess að þar sé gert ráð fyrir mjög mikilli umferðaraukningu og hagvexti sem hann telji ekki liggja jafn skýrt fyrir. Það eigi að hans mati að leiða til þess að menn spyrji hvort hægt sé að ná markmiðunum með hagkvæmari og skjótvirkari hætti.Um leið undirstrikar hann að eðlilegt sé að verulegir fjármunir fari í samgöngur á höfuðborgarsvæðinu þar sem þar búi stærstur hluti landsmanna. Lykilatriðið sé hins vegar að bæturnar skili sér fyrr.
Hver dagur án úrbóta kostar
Niðurstaða Konráðs er sú að stærsti lærdómurinn sé ekki aðeins bundinn við samgöngur heldur líka við það hvernig stór innviðaverkefni þróast almennt hér á landi. Þegar ákvarðanir dragist og framkvæmdum seinki hækki kostnaðurinn, ekki aðeins á pappír heldur í tíma fólks, framleiðni og daglegum lífsgæðum.„Hver dagur sem við erum föst í umferð kostar okkur gríðarlega mikið.“
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sigríður Jónsdóttir skrifar um Svikasögur eftir Maríu Reyndal, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haítíski rithöfundurinn Thelyson Orelien neitar að hafa not...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...