„Það eru hættur sem fylgja þessu,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir, oftast þekkt sem Ragga nagli, sálfræðingur með áherslu á heilsuvenjur í Morgunútvarpinu á Rás 2.
Notkun á svokölluðum peptíðum, sem seld eru á gráum markaði og fólk sprautar í sig, virðist vera að aukast hér á landi. Efnin eru seld á samfélagsmiðlum og gefa fögur fyrirheit um til dæmis betri húð, minni matarlyst og hraðari endurheimt eftir æfingar, án þess að slíkt hafi verið staðfest með rannsóknum á fólki.
Ragga nagli segir fólk gerast mennsk tilraunadýr við notkun peptíða. Hlustaðu á viðtalið við Röggu í spilaranum hér fyrir ofan en hún var meðal annars beðin um að útskýra peptíð fyrir stjórnendum Morgunútvarpsins eins og þau væru sjö ára.