Engir formlegir fundir eru á dagskrá oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í dag að sögn Friðjóns R. Friðjónssonar, en hann sér um þessar mundir um samskipti fyrir hönd Hildar.
Útilokar hann þó ekki að einhverjir fundir gætu átt sér stað. „Fólk er bara að tala saman,“ segir hann við mbl.is.
Á hann ekki von á að tíðinda sé að vænta í dag en útilokar það þó ekki.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, boðaði borgarstjórnarflokk sinn á fund í fyrradag þar sem staða mála var rædd.