Fjórir menn hafa verið sýknaðir af 36,45 milljóna króna kröfu Ueno ehf., félags Haraldar Þorleifssonar, vegna fyrirhugaðrar sameiningar veitingastaðanna Önnu Jónu og Mat Bars. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi að persónulegar ábyrgðir mannanna á láni hefðu ekki virkjast.
Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 25. september stóð til að stofna nýtt félag, Borð fyrir 7 ehf., sem héldi utan um veitingareksturinn. Ueno átti að lána félaginu allt að 40 milljónir króna og fjórir menn sem tengdust Mat Bar undirrituðu samning þar sem kveðið var á um sjálfskuldarábyrgð þeirra.
Áformin gengu ekki eftir. Borð fyrir 7 ehf. var aldrei stofnað, bú Mat Bars ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta í maí 2024 og rekstri Önnu Jónu var hætt. Ueno krafði mennina í kjölfarið um 36.450.909 krónur, sem félagið sagði samanstanda af beinum greiðslum til Önnu Jónu og rekstrarskuldum sem það hefði greitt fyrir veitingastaðinn.
Tryggingum ekki lokið
Dómurinn benti á að samkvæmt samningnum átti að ganga frá skuldabréfi og fleiri tryggingum áður en lánið yrði greitt út. Því var ekki lokið. Fyrirhuguð stjórnarskipan nýja félagsins varð heldur ekki að veruleika.
Að mati dómsins voru þetta mikilvægar forsendur ábyrgða mannanna. Frekari tryggingar hefðu getað minnkað líkurnar á að á persónulega ábyrgð þeirra reyndi, og fyrirhuguð aðkoma þeirra að stjórn rekstrarins hefði gefið þeim meiri möguleika á að hafa áhrif á ákvarðanir sem gátu skipt máli fyrir ábyrgðina.
Dómurinn taldi jafnframt að samskipti um greiðslu launa starfsfólks Önnu Jónu jafngiltu ekki staðfestingu á því að ábyrgðirnar hefðu tekið gildi.
Niðurstaðan var því að sjálfskuldarábyrgðir mannanna hefðu ekki virkjast. Þeir voru sýknaðir af kröfu Ueno og félaginu gert að greiða hverjum þeirra 350 þúsund krónur í málskostnað, samtals 1,4 milljónir króna.
Dómurinn tekur til persónulegrar ábyrgðar mannanna samkvæmt þessum samningi. Hann felur ekki í sér niðurstöðu um að Ueno hafi ekki lagt fé til rekstrarins.