Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, lætur af störfum við enda mánaðarins. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í gær. Hún hefur verið einn nánasti ráðgjafi Trumps.
Leavitt verður Trump og Repúblikanaflokknum áfram innan handar sem samskiptaráðgjafi. Þá mun hún starfa innan flokksins við stefnumörkun fyrir MAGA-hreyfinguna.
Leavitt, sem er 28 ára, var ráðin fjölmiðlafulltrúi í janúar í fyrra. Hún varð þá sú yngsta til að gegna þessu hlutverki. Ekki hefur verið greint frá því hver tekur við starfinu.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði Leavitt það hafa verið mikinn heiður og ævintýri að vinna sem fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins. Hún stefndi að því að verja meiri tíma með börnunum sínum.
Trump sagði á samfélagsmiðlum Leavitt hafa verið sannkallaðan leiðtoga í Hvíta húsinu og unnið frábært starf. „Karoline er búin að vera einn besti fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins í sögu embættisins,“ skrifaði Trump.