Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaður og í gær, en alls voru 279 háskólanemendur brautskráðir; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi.
Í tilkynningu frá Bifröst segir að þegar litið sé til deildaskiptingar hafi brautskráðst alls 59 nemendur frá félagsvísindadeild, 25 frá lagadeild og 156 frá viðskiptadeild, þar af 208 konur og 71 karl.
Þá voru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur. Hvatningarverðlaun hlutu Árdís Árnadóttir, Karen Jacobsen, Klara Ósk Elíasdóttir og Katrín Ýr Árnadóttir.
Útskriftarverðlaun fyrir Háskólagátt fengu Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir og Kristrós Erla Baldursdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir grunnnám fengu Svava Rós Guðmundsdóttir og Jenný Rebekka Jónsdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir meistaranám fékk Gylfi Gestsson.
Nöfn þeirra hafa þar með bæst við Bifrastarlista háskólans.
Brautskráningin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Tónlistarfólkið Jón Þór Sigmundsson, Edda María Jónsdóttir og Isobel Líf Díaz, sem öll koma frá Borgarbyggð og Borgarnesi, fluttu valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.

