Einn lést í Kænugarði og eldar eru sagðir loga víða í borginni. Í Lviv er leitað að fólki í húsarústum eftir að eldflaugar lentu á tveimur fjölbýlishúsum. Að minnsta kosti 26 særðust í þeirri árás.
Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti hafði varað við umfangsmiklum árásum af hálfu Rússa seinnipartinn í gær. Hann sagði undirbúning hafa staðið yfir í nokkra daga og líklega yrði látið til skarar skríða í nótt.
Forsetinn ítrekaði þörf Úkraínumanna fyrir fleiri eldflaugar í loftvarnakerfi sín.
Stjórnvöld í Póllandi sendu herþotur á loft en talið er að dróni eða eldflaug hafa ratað inn í lofthelgi landsins. Brak fannst nærri þorpinu Tarnawa-Kolonia í Lublin-héraði.