Elín Sif Halldórsdóttir leik- og söngkona, betur þekkt sem Elín Hall, er fjallkonan þennan þjóðhátíðardag.
Í ávarpi sínu, við hátíðardagskrá á Austurvelli í Reykjavík, flutti hún texta eftir Braga Valdimar Skúlason sem hófst með orðunum: „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin.“