Finnska þingið hefur samþykkt lagabreytingu til að aflétta allsherjarbanni við kjarnorkuvopnum í landinu samkvæmt norska ríkisútvarpinu. Með afléttingu bannsins verður leyfilegt að flytja kjarnorkuvopn til landsins og um landið, ásamt því að geyma slík vopn í landinu.
Bannið við innflutningi, framleiðslu, geymslu og sprengingu kjarnorkuvopna hefur verið í gildi í Finnlandi síðan á 9. áratugnum. Alexander Stubb, forseti Finnlands, á þó eftir að samþykkja lagabreytinguna.
Segir lagabreytinguna styrkja varnir landsins
Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, sagði í færslu á X á þriðjudag að lagabreytingin styrki varnir Finnlands og auki fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins.
Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, tilkynnti fyrr á þessu ári að Frakkar væru viljugir til að leggja til kjarnorkuvopn sín til að styrkja varnir Evrópu.
Forsætisráðherra Finnlands, Petteri Orpo, lýsti stuttu síðar yfir áhuga á þeim fyrirætlunum. Norðmenn hafa sömuleiðis áhuga á því að styrkja varnir landsins með sama hætti og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, undirritaði varnarsamning við Frakka í maí.