Heilbrigðisyfirvöld á Gaza segja að minnst fimm hafi verið drepnir í loftárás Ísraela á Al-Maghazi á Gaza í dag. Þar að auki hafi fjöldi fólks særst í árásinni.
Heilbrigðisyfirvöld sögðu að Ísraelar hefðu ráðist á hóp almennra borgara. Starfsfólk á Al-Aqsa staðfesti að þangað hefði verið komið með látna og særða.
Í það minnsta 904 Palestínumenn hafa verið drepnir síðan vopnahlé tók gildi 10. október, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu á Gaza. Á sama tíma hafa fimm ísraelskir hermenn verið drepnir að sögn þarlendra yfirvalda.