Ming Ting Mancel glímir hvorki við geðsjúkdóm eða geðrænan vanda, sagði dómskvaddur matsmaður við aðalmeðferð hins svokallað Edition-máls í dag. Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið þrítugri dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní í fyrra.
Lögreglumaður sem fylgdi Mancel frá vettvangi á slysadeild segir hana hafa sagt heilbrigðisstarfsmanni að hún hefði ekki viljað skilja dóttur sína eina eftir lifandi.
Bæði eiginmaðurinn og dóttirin fundust látin í herberginu en Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns.
Aðalmeðferð hófst í Héraðsómi Reykjavíkur á föstudag en hélt áfram í dag.
Lögreglumaðurinn kom á vettvang og var einn þeirra sem fylgdi Mancel á sjúkrahús og sat yfir henni meðan hún fékk aðhlynningu þar. Hann sagðist hafa heyrt Mancel segja heilbrigðisstarfsmanni að eiginmaður hennar væri með banvænan sjúkdóm og að hún hefði ekki viljað skilja dóttur sína eftir eina. Sjálf hefði hún ætlað að binda enda á líf sitt með því að stinga sig í hjartað.
Hann sagði það hafa vakið athygli hans að Mancel sýndi engar tilfinningar og grét aldrei. „Eina skiptið sem hún felldi tár var þegar heilbrigðisstarfsmaður tjáði henni að hún væri ekki í lífshættu,“ sagði lögreglumaðurinn.
Sjúkraliðar sem hlúðu að sárum Mancels og fluttu hana á sjúkrahús lýstu henni sem rólegri og yfirvegaðri. Einn þeirra sem bar vitni í dag sagði Mancel hafa sagt að eiginmaður hennar hefði ráðist á þær mæðgur.
Glími ekki við geðrænan vanda
Sérfræðingur hitti Mancel í þrígang til að meta andlegt ástand hennar.
Hann sagði að farið hefði verið ofan í samskipti Mancels við eiginmann sinn og hvort hún hefði verið „undir hælnum á honum“, eins og það var orðað í dómsal í dag. Mancel hefði komið því mjög skýrt til leiðar að samband þeirra hefði verið jafningjasamband. Þau hjónin hefðu gefið dóttur sinni kost á að vera áfram á lífi og hún tekið sjálfstæða ákvörun um að vilja deyja með foreldrum sínum.
Hins vegar var ekki farið út í nákvæm atriði um hvernig samtalið fór og ekki tekið fram hvernig dóttirin hefði brugðist við ákvörun foreldranna um að enda eigið líf.
Almennt séð var Mancel hvorki metin með geðsjúkdóm, hvorki nú né fyrir atvikið á Edition-hótelinu, né glími hún við geðrænan vanda.