Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna viðurkennir að 14 milljóna dollara endurbætur á svokallaðri Spegilstjörn við Lincoln-minnisvarðann í Washington-borg, sem farið var í að frumkvæði Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna, hafi verið gallaðar. Stjórnvöld hafa fallist á að fella niður sakamál gegn David Hearn, Ólympíufara sem sakaður var um að hafa skemmt tjörnina, samkvæmt nýjum dómsskjölum frá ríkissaksóknara.
CNN greinir frá.
„Það var ekki fyrr en eftir að ákæra [gegn Hearn] var birt sem innanríkisráðuneytið afhenti ríkissaksóknara í Washington skjöl sem bentu til þess að skemmdir á Spegiltjörninni við Lincoln-minnisvarðann í júní 2026 væru afleiðing af gölluðum frágangi verktakans, Atlantic Industrial Coatings, og flýtis við að ljúka verkinu fyrir viðburði tengda 250 ára afmæli Bandaríkjanna vikurnar í kringum þjóðhátíðardaginn 2026,“ segir í erindi frá skrifstofu saksóknarans.
Lögmenn Hearns sögðu í yfirlýsingu að skýring Trump-stjórnarinnar hefði aldrei átt að fara af stað.
„Niðurfelling málsins í dag afmáir ekki misnotkun ríkisvaldsins sem fólst í því að handtaka og ákæra þjóðrækinn Bandaríkjamann sem gerði ekkert af sér. Aðferð stjórnvalda var að skjóta fyrst, spyrja svo. Stjórnvöld skulda Hearn afsökunarbeiðni.“