Tveir farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru látnir eftir bráð veikindi í öndunarvegi. Einn farþegi til viðbótar var fluttur á gjörgæsludeild í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, þungt haldinn. Hann hefur greinst með Hantaveiru. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir heilbrigðisráðuneyti Suður-Afríku. Hantaveira berst úr nagdýrum í mannfólk og getur valdið blæðandi hitasótt.
Skipið var á siglingu frá Argentínu til Grænhöfðaeyja þegar veikindi fóru að gera vart við sig um borð. Hondius er reglulegur gestur í íslenskum höfnum. Það á að halda af stað í siglingu um norðurslóðir frá Keflavíkurhöfn síðar í mánuðinum. Gert er ráð fyrir að skipið staldri við á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, í Grímsey og á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum AFP hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, fengið upplýsingar um veikindi farþeganna. Rannsókn og samhæft viðbragð heilbrigðisyfirvalda er í farvatninu, upplýsir WHO.
Líklegt að fleiri hafi veikst
Hin látnu eru hjón sem voru um sjötugt. Maðurinn lést um borð en konan eftir að hún hafði verið flutt á spítala í Jóhannesarborg.
Heimildarmaður AFP, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir að rætt hafi verið um hvort flytja ætti tvo farþega til viðbótar í einangrun á spítala á Grænhöfðaeyjum. Næsti áfangastaður skipsins er á Kanaríeyjum en á vefsíðum þar sem hægt er að fylgjast með skipumferð sést að skipið liggur fyrir akkeri úti fyrir Praia, höfuðborg Grænhöfðaeyja.
Skipið rúmar 170 farþega. Um 70 eru í áhöfn.