Nýlega synjaði félagsmálaráðuneytið kröfu Hafnarfjarðarbæjar um endurgreiðslu fjárhagsaðstoðar sem bærinn veitti foreldri átta barna, um nokkurra mánaða skeið, en börnin komu hingað til lands á grundvelli fjölskyldusameiningar eftir að foreldrið fékk alþjóðlega vernd.Vinnumálastofnun hafði synjað beiðni bæjarins um endurgreiðslu sem kærði þá niðurstöðu til ráðuneytisins.Synjunin var raunar kærð fyrir tveimur árum, í maí 2024, og því hefur málið tekið nokkurn tíma í vinnslu í ráðuneytinu.
Fá ekki fjárhagsaðstoð við átta barna foreldri endurgreidda