Er íslenska glerperlan töfraventill?

Er íslenska glerperlan töfraventill?

Er íslenska glerperlan töfraventill?

Er íslenska glerperlan töfraventill?

Með hinni víð­tæku verð­trygg­ingu var ís­lensk­um fjár­magns­eig­end­um veitt víð­tæk­ari vernd held­ur en áð­ur hafði þekkst, seg­ir Ketill Sig­ur­jóns­son.

Sumir segja gjald­miðilinn sem við notum hér á Íslandi, ísl­ensku krón­una, vera þann gjald­miðil sem hentar okkur best. Í því sam­bandi væri kannski nær­tækara að tala um gjald­miðla í fleir­tölu. Annars vegar er gler­perl­an ISK. Og hins vegar er verð­tryggða krónan. Hér eru nokkrar hug­leið­ingar um það hvort þetta gjald­miðla­fyrir­komu­lag sé virki­lega besti mögu­leikinn sem Íslandi býðst.

 

Eilífðarglíman við verðbólguna

Nú er bráðum liðin hálf öld síðan þáver­andi þing­heimur við Austur­völl gafst upp gagn­vart þrá­látri verð­bólg­unni. Vegna hennar hafði raun­virði hverrar krónu skropp­ið hratt saman. En nú var ákveðið að reyna að tryggja að verð­bólgan myndi ekki skerða raun­virði til­tek­inna fjár­skuld­bind­inga, með því að láta höfuð­stólinn breytast í hlut­falli við verð­lags­breyt­ingar. Til varð hin verð­tryggða íslenska króna við hlið gömlu gler­perl­unnar. 

Aðferð­in var byggð á eldri og tak­mark­aðri verð­trygg­ingu, sem ís­lenskir stjórn­mála­menn tóku að grípa til nokkuð snemma á lýð­veldis­tím­anum. Verð­tryggða krónan var nú fest í sessi og komið á eins­konar sjálf­stýr­ingu á raunvirði mjög umtals­verðs hluta bæði lána og sparn­aðar. Með þessu var líkt og gefist upp á að reyna að reka hér peninga­stefnu með ámóta hætti eins og gerist í öðrum lönd­um í okkar heims­hluta.

 

Í þá daga þegar verðtrygg­ingunni var komið á var íslenskt atvinnu- og efna­hagslíf bæði ein­hæft og ein­angrað. Kannski var verð­trygg­ingin nánast nauðsyn­legt úrræði á þeim tíma til að sparnaður og líf­eyrir lands­manna fuðraði ekki upp í óða­verð­bólg­u. Segja má að með tím­anum hafi komið í ljós að þetta fyrir­komu­lag, samhliða marg­vís­legum breyt­ingum í hag­kerfinu, hafi dregið úr óstöð­ug­leika og í fram­hald­inu varð oft góður hag­vöxtur ásamt kaup­máttar­aukningu. En það er ekki hvorki íslenska krónan né verð­trygg­ingin sem skapa verð­mætin eða vel­ferð­ina og því miður hefur þetta fyrir­komu­lag ýmsa og veru­lega galla.

Glerperla er réttnefni

Kannski þykir einhverjum það vera óvirð­ing af mér að líkja íslensku krón­unni við gler­perlu. En sam­hengið ætti að vera aug­ljóst. Það er t.a.m. löngu sannr­eynt að verð­gildi hennar rýrnar alla jafna mjög hratt. Þess vegna lánar enginn krón­urnar sínar til lengri tíma (óverð­tryggt) nema að skuld­ar­inn greiði þær til baka með breyti­legum og óvenju háum vöxt­um. Og enginn kærir sig um að eiga óverð­tryggðar krónur til lengri tíma nema unnt sé að geyma þær á óvenju háum vöxtum. Því það væri lítið skárra en að eiga raun­veru­legar gler­perlur.

Þegar kemur að systkini glerperlunnar, þ.e. hinni verð­tryggðu krónu, er aðstaðan nokkuð önnur. En líka býsna sérstök. Vegna bómullar­klæðn­ing­ar­innar sem verð­trygg­ingin veitir eig­anda verð­tryggðrar krónu, þá er slík eign fjarska áhættu­lítil. Nánast svo furð­ulega áhættu­lítil að það ætti að kallast hag­fræði­legt krafta­verk. Fyrir eig­andann. En fyrir þann sem skuld­ar verð­tryggðar gler­perlur getur gam­anið kárnað og það mjög skyndi­lega. Þar að auki fylgja verð­trygg­ing­unni margs­konar aðrir gallar. 

Íslenska verðtrygging er afar óvenjulegt fyrirbæri

Verð­tryggð lán í ein­hverju formi þekkjast í fleiri lönd­um en á Íslandi. Engu að síður er hin víðtæka notkun verð­trygg­ingar, sem hefur tíðk­ast hér á landi um hálfrar aldar skeið, mjög óvenju­leg. Fylgi­fiskur hennar er m.a. sá að með þessu fyrir­komu­lagi hefur stór hluti al­mennings á Íslandi í gegnum tíðina nánast verið þving­aður í flók­inn afleiðu­leik í tengsl­um við sína stærstu fjár­fest­ingu, þ.e. hús­næð­is­kaup. Það að skulda verð­tryggða krónu er ein­hver undar­legasti rúll­ettu­leikur sem þekk­ist. Og það hvernig verð­trygg­ingin svo gott sem firrir lán­veit­anda áhættu er nokkuð sér­kenni­legt viðskipta­fyrir­komu­lag. Einnig er óheppi­legt hvernig verð­trygg­ingin ýtir undir það að raunvextir hér séu háir. 

Verðbólga étur upp skuldir... nema á Íslandi

Síðan verð­trygg­ing­unni hér var komið á hefur mikið vatn runn­ið til sjávar og margt verð­bólgu­skotið orðið til þess að snar­hækka skuldir lands­manna, stundum á ör­skömmum tíma. Sem er kannski svo­lítið tragí­kómískt í ljósi þess að alls staðar annars staðar í okkar heims­hluta er verð­bólga umfram vænt­ingar til þess fall­in að éta skuldir. Þar leiða slík verð­bólgu­skot almennt til lækk­unar á raun­virði skulda. Vegna hinnar víð­tæku verð­trygg­ingar hér á landi má segja að hér sé aftur á móti bein­línis ásetn­ingur að koma í veg fyrir slíkt; kröfu­hafinn er gerður svo gott sem áhættu­laus. Slíkt getur varla talist heil­brigt við­skipta­umhverfi.

 

Óverðtryggt langtímalán á föstum vöxtum fæst ekki á Íslandi

Tilefni þessara skrifa eru m.a. þau að ég hef í gegn­um tíðina kynnst dönsku hag­kerfi nokkuð vel og freist­ast stund­um til að bera það saman við hið íslenska. Í því sam­bandi má nefna að kaupi ein­stakl­ingur íbúð í Dan­mörku býðst honum veðlán til 30 ára. Sé slíkt lán tekið í dag bjóð­ast fastir vextir nálægt 4%. Það merkir að raun­vextir á slíku lán­i eru innan við 2% um þessar mundir. Lánið er auð­vitað ekki verð­tryggt. Lán­veit­and­inn er sáttur við að lána höfuð­stól­inn til 30 ára á föstum 4% vöxtum og það án verð­trygg­ingar. 

Húsnæðis­kaup­andi á Íslandi getur valið um lán í tvenns konar krónu­gjald­miðlum til að fjár­magna kaup sín. Annars vegar að taka lán í gler­perl­unni ISK á háum breyti­legum vöxtum og hins vegar að taka lán í verð­tryggðri krónu og þá annað hvort á breyti­legum eða föst­um vöxt­um.

 

Hvort sem íslenska húsnæðis­lánið er tekið í gler­perlum eða verð­tryggðri krónu þá hafa raun­vext­irnir hér almennt verið háir. Ekki aðeins eru raun­vextir á Íslandi t.a.m. miklu hærri en í Danmörku (bæði núna og sögu­lega), heldur er hér alls ekki boðið upp á fasta vexti á lang­tíma­lánum líkt og gert er þar. M.ö.o. þá er eng­inn sem veitir lán í ISK til langs tíma á föst­um vöxt­um. Ekki nema með verð­trygg­ingu.

Þar að auki eru lána­mögu­leik­arnir mun fjöl­breyttari í Dan­mörku en á Íslandi, sem senni­lega skýrist m.a. af því að þar er meiri sam­keppni milli banka en er hér á landi. Allur þessi mis­munur ætti að vera til­efni til miklu meiri um­ræðu um fyrir­komu­lag pen­inga­mála hér en verið hefur.

Skjaldborg var slegin um fjármagnseigendur

Nei; enginn veitir lán í ISK til langs tíma á föst­um vöxtum. Ekki nema með verð­trygg­ingu. Fyrir því er fyrst og fremst ein ástæða; ótti fjár­magns­eig­and­ans um að gler­perlu­lánið brenni upp í verð­bólgu. Þann ótta ákvað þing­heimur við Austur­völl fyrir margt löngu að sefa með verð­trygg­ing­unni. Hluti rétt­læt­ing­ar­innar var að þann­ig mætti vernda líf­eyris­sparnað almenn­ings. En um leið var líkt og skjald­borg væri slegin um fjár­magns­eigendur og það með býsna óvenju­leg­um hætti. Með hinni víð­tæku verð­trygg­ingu var ís­lensk­um fjár­magns­eig­end­um veitt víð­tækari vernd held­ur en áður hafði þekkst. Jafn­vel umfangs­meiri vernd en þekkst hefur í gjörv­allri nú­tíma­hag­sögu heims­ins. Þetta er um margt mjög ein­kenni­legt fyrir­komulag. 

Vítahringur verðtryggingar og hárra raunvaxta á Íslandi

Hér að framan var nefnt dæmi um húsnæðis­lán í Dan­mörku og athygli vakin á því að þar eru raun­vextir miklu lægri en á Íslandi. Sama niður­staða fæst líka þegar sam­an­burður er gerður við flest önnur lönd sem Ísland er almennt borðið saman við. Munur­inn þarna hefur þó að sjálf­sögðu verið mis­jafn. Í tím­ans rás hafa vextir sveifl­ast mjög og t.a.m. eru raun­vextir í Banda­ríkj­unum býsna háir um þessar mundir. Það breytir því þó ekki að í öll­um slík­um saman­burði hafa raun­vextir á ISK lengst af verið mjög háir. Að ætla að þeir muni verða mun lægri í fram­tíð­inni er kannski falleg bjart­sýni, en ég hygg að fæstir Íslend­ingar búist við slíkri óvenj­ulegri þróun.

Þar að auki er mikil­vægt að fólk geri sér grein fyrir því að verð­trygg­ingin ein og sér, eins og hún er útfærð hér, hefur áhrif á vexti. Þetta víðtæka verð­tryggða fyrir­komu­lag minnir á hring­ekju sem sífellt ýtir undir vextina. Um þenn­an vítahring mætti hafa langt mál, en þetta hefur t.a.m. verið útskýrt í hnot­skurn á öðrum vett­vangi af banka­stjóra Arion banka.

Það er enginn vafi á því að hin víð­tæka íslenska verð­trygg­ing er að mörgu leyti óæski­legt fyrir­komu­lag. Um leið og verðtryggingunni er ætlað að tryggja að sparn­aður brenni ekki upp í verð­bólgu, þá gerir verð­trygg­ingin erfið­ara um vik að hafa stjórn á verð­bólgu. Fyrir vikið verður vaxta­tæki Seðla­bank­ans óskil­virkt. Þetta er svo­lítið eins og þegar unga­barn mokar sand­holu í úrhelli; gegn­sósa sand­urinn í kring fyllir hana jafn­óðum. Og barnið mokar og mokar án mikils árangurs.

Fróðlegt væri að setja mælistiku á gallana

Þeir gallar sem fylgja fyrir­komulagi peninga­mála á Íslandi eru þess eðlis að erfitt er að mæla þá af ná­kvæmni. Fyrir vikið er auð­velt að gera ágrein­ing um það hvort þetta séu smá­vægi­legir eða miklir gallar. En ég hygg að það sé ekki ofsagt að íslenska krón­an vinni bæði gegn auk­inni rekstrar­hag­kvæmni, gegn auk­inni sam­keppni og gegn ný­sköpun í atvinnu­lífinu. Og löng verð­tryggð lán líkt og ýta skuldum inn í fram­tíðina og það skapar senni­legan falskan kaup­mátt. Sem er enn einn galli verð­trygg­ing­ar­innar. 

Tjón­ið sem þetta allt veldur þjóð­inni er örugg­lega veru­legt, en eins og áður sagði er erfitt að slá á það máli. Ekki er þó mjög langt síðan að einn verka­lýðs­leið­toginn skaut á að tjónið nemi 200 milljörðum króna á hverju ári. Bara fyrir neyt­endur og heimil. Þetta meinta tjón kann reyndar að vera tölu­vert of­metið hjá við­kom­andi. Fróð­legt væri að fá skil­merki­lega og uppfærða grein­ingu á þessu frá t.d. Seðla­bank­anum og Hag­fræði­stofn­un HÍ; það væri kannski meira upp­lýs­andi heldur en þessi litla grein eða suðið sem nú geisar víða á sam­fél­ags­miðlum í tengslum við um­ræðu um krónu og evru.

 

Íslenski töfraventillinn

Á móti göllum ISK kemur gagn­semi hennar. Og þá kannski helst sú meinta gagn­semi að krónan gefur færi á að mæta efan­hags­áföllum hér með hraðri gengis­lækkun og almennri kaup­máttar­skerð­ingu. Þann­ig má auka út­flutn­ing og vinna gegn atvinnu­leysi á harð­inda­tímum. Sumir líkja þessu við að gengi ISK sé ventill og álíta að þetta sé besti vent­ill­inn fyrir íslenska hag­kerfið og nýtist vel til að bregð­ast við því ástandi ef t.a.m. laun hér hafi hækk­að um of. Í því samb­andi mætti kannski tala um að krónan sé töfra­ventill.

 

Umrædd samlíking við ventil gengur út á það að ef laun hafa hækkað mikið miðað við aðrar helstu breyt­ur í efna­hags­lífinu, eins og fram­leiðni, leitar hag­kerfið á ein­hverjum tíma­punkti jafn­vægis. Með okkar íslensku krónu gerist það með lækk­un á gengi hennar, sem leiðir til verð­lags­hækk­ana og hækk­unar á verð­tryggð­um lánum, með til­heyr­andi skerð­ingu á kaup­mætti lands­manna.

 

Við gengis­lækk­unina upp­lifir hinn erlendi kaup­andi verð­lækkun á íslenskri vöru og þjónustu miðað við hans eigin gjald­miðil. Gengis­ventill­inn hefur blás­ið og hjálpar þann­ig til við að nýtt jafn­vægi skap­ist, a.m.k. um stundar sakir. Þessi vent­ill er samt ekki endi­lega besti vent­ill­inn. Einnig má efast um að þetta sé sann­gjarnt jöfn­un­ar­tæki. Um leið má hafa í huga að jafn­vel þó svo krónan kunni að vera heppi­legur ventill þegar „við yfir­skjótum okkur á vinnu­markaði“ er verð­tryggða gler­perlan meira eða minna til vand­ræða flest­alla aðra daga með þeim sjálf­krafa verð­bólgu­þrýst­ingi sem hún veldur.

 

Hvaða ventill er bestur til framtíðar?

Í Dan­mörku, sem tengir dönsku krónuna við gengi evru með smá­vægi­legum vik­mörkum, myndi sam­bæri­leg jafn­vægis­leitni síður birtast í lækkun á gengi DKK en meira í tíma­bund­inni aukn­ingu á atvinnu­leysi. Dönum þykir það skárri kostur heldur en snörp gengis­lækkun, þ.a. það eru greini­lega mis­mun­andi skoð­anir á því hvers­konar ventill sé ákjósan­legastur. Enda er ekki neinn einn ventill þarna óum­deil­an­lega sá rétti; þetta snýst um að reyna að velja skásta ventil­inn. Kannski er smá glatað að trúa því ennþá að veru­legt og stund­um mjög snöggt gengis­sig gler­perl­unnar sé alltaf skásti kost­ur­inn fyrir Íslend­inga. Það er a.m.k. skyn­sam­legt að skoða vel það álita­mál hvort þetta sé besti vent­ill­inn til fram­tíðar eða hvort annars konar ventill eða fyrir­komulag væri æski­legra.

 

Vinnuafl á Íslandi er hreyfanlegra en áður var

Vert er að hafa í huga að íslenskur vinnu­mark­aður hefur breyst gríðar­lega á síðustu ára­tugum. Hér á landi er nú mjög mikið um það sem oft er nefnt hreyf­an­legt vinnu­afl, sem eru fyrst og fremst útlend­ingar sem koma hingað tíma­bundið fremur en með lang­var­andi búsetu í huga. M.ö.o. þá lifum við á tím­um þar sem tölu­verður hluti vinnu­afls á Íslandi er mun hreyf­an­legra en áður var. Þess vegna ætti kannski að gæta sín á því að rétt­læta íslensku gler­perluna til eilífð­ar­nóns með grýl­unni um atvinnu­leysi. 

Bómullarumhverfið er þægilegt fyrir suma

Eftir stendur sú eilífðar­spurn­ing hvort hin meinta gagn­semi gler­perl­unnar sé í reynd eðli­leg rétt­læting þess að hún sé það besta sem Íslandi býðst. Ég skil samt auð­vitað vel að margir lán­veit­endur og fjár­magns­eig­endur hér séu margir hverjir býsna sáttir við þetta fyrir­komu­lag. Líf þeirra verður þægi­legra fyrir vikið. Og það er jú svo að þegar lífið er þægi­legt eru við­kom­andi oft síður spenntir fyrir breyt­ingum. 

Einnig er vert að hafa í huga að líklegt er að sífellt fleiri Íslend­ingar, sem þess eiga kost, semji um laun sín í erlend­um gjald­miðli og fjár­magni t.a.m. hús­næðis­kaup sín í sama lág­vaxta gjald­miðli. Þann­ig mun smám saman myndast hér eins konar gjald­miðla­yfirstétt, meðan almenn­ingur situr í verð­tryggðu gler­perlu­súpunni. Sem er varla sann­gjarnt. Kannski er þetta reyndar nú þegar orðinn raun­veru­leiki.

Ég er mjög efins um að íslenska gler­perlan sé töfra­ventill. Hún er heldur ekki nátt­úru­lög­mál og það er verð­trygg­ingin ekki heldur. Sjálfur hef ég lengi furðað mig á doð­anum og lang­lundar­geðinu hér gagn­vart þessu furðu­lega fyrir­komu­lagi. Verð­trygg­ingin hér er tæki sem var skapað þegar efna­hags- og atvinnu­lífið á Íslandi var með allt öðrum hætti en nú er. Sjálf­um þyk­ir mér verð­trygg­ingin löngu vera orðin til marks um það sem kalla mætti metn­að­ar­leysi hjá íslenskri stjórn­mála­stétt; að henni hafi um langt skeið þótt þægi­legast að hafa þetta svona frem­ur en að þurfa að stússa í því að sýna meiri ábyrgð við stjórn peninga­mála.

 

Tímabært er að Ísland losi sig við alltof víðtæka verðtryggingu

Ég álít það vera orðið löngu tíma­bært að við Íslend­ingar tökum skref inn í nú­tím­ann og losum okkur undan því furðu­lega fyrir­komu­lagi sem hin víð­tæka verð­trygg­ing er. En þá þarf að kom­ast að nið­ur­stöðu um það hvernig þetta getur með bestum hætti orðið. Einn mögu­leik­inn er að fara svip­aða leið eins og Danir hafa gert og þar með hætta með íslensku krón­una eins og við þekkj­um hana, með til­heyr­andi aðild að Evrópu­sambandinu. Annar mögu­leiki er að við ger­um það eitt að losa okkur við verð­trygg­ing­una og höldum í gler­perl­una. Í ljósi sög­unnar virðist sá mögu­leiki reyndar því miður vera lítt raun­sær vegna hætt­unnar á óða­verð­bólgu.

 

Hér framar undraðist ég á því hversu tak­mark­aðan áhuga íslenskir stjórn­mála­menn hafa í gegn­um tíð­ina sýnt því að losa okkur undan verð­trygg­ing­unni. Sá áhugi hefur aðal­lega birst í skýrslum og mál­skrúði, en lítt í að­gerð­um. Hvað því veld­ur veit ég ekki. En stund­um er sagt að glöggt sé gests augað. Nýverið skrif­aði Íslend­ingur af erlend­um upp­runa, Bala Kamallakharan, að hér hafi bæði skort sterka leið­sögn og stuðning frá þjóð­inni til að ganga í verkið. Sem er senni­lega alveg rétt. Við Íslend­ingar höfum ekki gagn­rýnt þetta kerfi að nægri festu og ekki þrýst almenni­lega á breyt­ing­ar. Kannski hefur hálfrar aldar kerfi verð­trygg­ing­ar gert flest okkar of væru­kær og ógagn­rýnin. Í þessu verð­tryggða umhverfi er skuld­un­um sífellt ýtt út í fram­tíðina og það getur skapað vissa blekk­ingu.

 

Umræddur Bala Kamallakharan álítur að við ætt­um að losa okkur undan verð­trygg­ing­unni og hefur bent á leiðir til að gera það án þess að ganga í Evrópu­sambandið. Þær til­lögur eru áhuga­verðar, en kunna að vera um of áhættu­samar í fram­kvæmd. Fræði­lega kann að vera unnt að bæði losa okkur við verð­trygg­inguna og hafa það sem kalla mætti sam­keppnis­hæfa vexti á krón­unni. Lík­urnar á því að það geti raun­gerst á far­sælan hátt í svona agn­ar­smáu hag­kerfi, með gler­perlu sem enginn utan Íslands hefur áhuga á, eru samt senni­lega fjarska litlar. En hvað sem því líður þá erum við Bala a.m.k. sam­mála um að verð­trygg­ingin hér sé alltof víð­tæk og að íslenska þjóð­in ætti að losa sig við hana. Von­andi gerist það með ein­hverjum skyn­sam­legum hætti. Og þá helst fyrr en seinna. 

Ísland er gott og getur orðið enn betra

Mér þykir við Íslend­ingar vera alveg dásam­lega heppin að vera á þessari fall­egu, gjöf­ulu og spenn­andi eyju hér í norðri. Þegar upp er staðið held ég að þannig verði það áfram, hvort sem Ísland verði áfram með eigin gjald­miðil eða taki upp t.a.m. evru með aðild að Evrópu­sambandinu. Sjálfur er ég fer­lega mikill erki Íslend­ingur, sem líður hvergi betur en á Íslandi. En ég nenni samt ekki verð­tryggðu gler­perl­unni. Það fyrir­komu­lag þrýstir vöxtum upp, skapar falskan kaup­mátt, vinnur gegn hag­kvæmni, vinnur gegn sam­keppni og er ósann­gjarnt. Við þessu þarf að bregðast; ekki með skýrslum né smá­skammta­lækn­ingum, heldur með raun­veru­legum aðgerðum.

#glerperlan #töfraventill #íslenska


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27041/er-islenska-glerperlan-tofraventill/

📰 Aðrar fréttir

Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
📅 07.11.2026 👁️ 1
Kristrún opin fyrir fleiri NATO-hermönnum á Íslandi en telur fasta viðveru óþarfa
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er opin fyrir því að fleiri hermenn NATO komi til Íslands í skiptivinnu en telur ekki þörf á fastri bandarískri...
„Hún mun alltaf vera með mér“
📅 07.11.2026 👁️ 2
„Hún mun alltaf vera með mér“
„Hún mun alltaf vera með mér“ Adolf Þór Har­alds­son missti stóru ást­ina í lífi sínu aðeins nítján ára gam­all þegar Hannah Jane Large lést á Krýsu­v...
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
📅 07.11.2026 👁️ 2
Svíþjóðardemókratar gefa eftir kröfu um að vera í ríkisstjórn
Þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar hefur fallið frá kröfu um ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn í Svíþjóð. Jimmie Åkesson, formaður flokksins, t...
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Enn einn maðurinn ætlaði að myrða Trump - Vísir
Fréttaveitan AP greinir frá en þar segir að leyniþjónustumenn hafi nálgast manninn á fimmtudagskvöld. Hann hafi verið talinn hafa hagað sér grunsamleg...
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
📅 07.11.2026 👁️ 1
Steinunn og Jóhann fundu leiðina aftur til hvors annars eftir fjögur ár: „Ég hugsaði: Sjáum hvað hann hefur að segja“
Hver ástarsaga er einstök og þar með talin saga þeirra Steinunnar Óskar Valsdóttur og Jóhanns Helga Sveinssonar. Þau eru gott dæmi um „rétta manneskju...
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
„Upp­áhalds­leikarinn minn er Jón Jóns­son að leika konur“ - Vísir
Veruleikinn er þó annar hjá sjónvarpsmanninum, uppistandaranum og skemmtikraftinum sem stýrir Kviss á Sýn, heldur spurningakeppnir fyrir fyrirtæki og ...
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
📅 07.11.2026 👁️ 1
Lögum um nýja gjaldheimtu í höfnum landsins fylgir engin reglugerð
Öll stærstu skip sem koma í íslenskar hafnir greiða úrgangsgjald og förgunargjald samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnarsjóðs. Það er á þeirra ábyrgð, o...
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
📅 07.11.2026 👁️ 2
Woman critical after being rescued from the sea in Costa Adeje
A woman was taken to hospital in a critical condition yesterday, Friday 6th November, after being pulled from the sea at Playa La Pinta in Costa Adeje...
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Ný stefna leysir þá þrettán ára gömlu af hólmi - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að markmið stefnunnar sé að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki...
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
📅 07.11.2026 👁️ 2
Hnífjafnar og spennandi þingkosningar
Það stefnir í hnífjafnar og spennandi þingkosningar á Nýja-Sjálandi í dag. Aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja að þingflokk forsætisráðherra og Verka...
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
📅 07.11.2026 👁️ 2
Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal
Athygli vakti að áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórar sóttu réttarhöld í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti ge...
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura
Lögregla stöðvaði ökumann eftir að hann ók á ljósastaur, upp á umferðareyju og á annan ljósastaur miðsvæðis í borginni. Ökumaðurinn var vistaður í fan...
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Events cancelled and municipal attractions closed in Tenerife due to Storm Bruna
Residents and holidaymakers in Tenerife are being urged to check their plans as Storm Bruna approaches the island, with closures and event suspensions...
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Hefur fyrir­gefið bana­manni systur sinnar - Vísir
Gerða var fimmtán ára unglingur þegar eldri systir hennar, Linda Björk Bjarnadóttir, lést í kappakstursslysi á Hverfisgötu í Reykjavík, í apríl árið 1...
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
📅 07.11.2026 👁️ 2
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað
Húðin bráðnaði – aðeins neglurnar héldust á sínum stað Hlustaðu 03:50 · Sif −15 +30 1× Heimir Már Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks f...
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Gerðu á­rásir á nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá hljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en eyjan er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um svæðið....
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Gerðu á­rásir nærri Hormússundi - Vísir
Íranskir miðlar greina frá sprengjuhljóðum frá tveimur flugskeytum á Suza-svæðinu á eyjunni Qeshm en hún er mikilvægur þáttur í olíuflutningaleið um s...
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
📅 07.11.2026 👁️ 3
Víða allhvasst í kvöld og kólnar á morgun
Búast má við suðvestan átt, strekkingi og rigningu víða um landið. Þurrt verður að mestu austanlands. Víða verður svo hvasst eða allhvasst í kvöld. Hi...
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Kólnar í veðri næstu daga - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðardrag liggi yfir landinu sem valdi strekkingi og úrkomu víða. Búist er við suðvestanátt á bilinu 10 til 18 ...
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 2
Concern over growing illegal settlement close to complexes in south Tenerife
Residents in Los Cristianos are calling for action as an illegal settlement continues to grow on the slopes of Montaña de Guaza, close to residential ...
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ók upp á um­ferðar­eyju og á tvo ljósa­staura - Vísir
Er þetta meðal þeirra 78 mála sem bókið eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls eru sex vistaðir í geymslum lögreglu.  Er þetta meðal þeir...
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 2
Flugferlar Græn­lands hannaðir í Reykja­vík - Vísir
„Fyrir utan þessi þrjú stóru verkefni hefur Avians séð um flugferlahönnun og flugprófanir á flugvöllum Grænlands og Færeyja í fjöldamörg ár,“ segir In...
„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
„Sárs­auki í sinni hreinustu mynd“ - Vísir
Halla er fædd árið 1996 og á tvo stráka. Hún er menntaður grunnskólakennari en á uppvaxtarárunum átti tónlistin hug hennar allan og fyrir tveimur árum...
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
📅 07.11.2026 👁️ 3
Óttar Guðmundsson skrifar: Marilyn og Ragnheiður
Mynd Ragnheiður Brynjólfsdóttir biskupsdóttir er ein frægasta
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
📅 07.11.2026 👁️ 1
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Ég fór til vinnu – ekki til að missa heilsuna
Ragnheiður Sigurðardóttir skrifar: Þegar einstaklingur verður fyrir varanlegu heilsutjóni á vinnustað vakna spurningar um ábyrgð, réttlæti og stöðu hi...
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
📅 07.11.2026 👁️ 2
Yfir þúsund komu sjóleiðis til El Hierro á einum degi – hundruð flutt til Tenerife
Alls komu 1.003 manns sjóleiðis til El Hierro á Kanaríeyjum föstudaginn 6. nóvember. Um 350 voru flutt frá eyjunni til Tenerife um morguninn og áætlað...
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
📅 07.11.2026 👁️ 1
Pope Leo in 'pretty good health' as he starts Latin America tour
Pope Leo travels to Uruguay just three weeks after having surgery for lung cancer.
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
📅 07.11.2026 👁️ 3
Pútín setur á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun ...
Pútín setur tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
📅 07.11.2026 👁️ 2
Pútín setur tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ætlar að setja á tímabundnar hömlur á Rússa sem búa erlendis. Forsetinn undirritaði forsetatilskipun í gær um stofnun ...
Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
📅 07.11.2026 👁️ 4
Parliament restoration delays 'frustrating', says Commons Speaker
Sir Lindsay Hoyle urges action after a committee warns it is "crunch time" for the ailing building.
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
📅 07.11.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Lyklar, gler­búr og Inga Sæ­land - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju úti fyrir ströndum Írans í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að Íranar h...
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
📅 07.11.2026 👁️ 4
Married at First Sight UK: Relief, tears and sadness - how cast reacted to Channel 4 show being axed
It was cancelled after a BBC Panorama investigation heard allegations from three former cast members.
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
📅 07.11.2026 👁️ 4
Tesla dregur úr framleiðslu á Cybertruck-bílum
Dregið verður úr framleiðslu á Cybertruck-bílum í verksmiðju Tesla í Texas um mitt næsta ár. Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, greindi f...
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
📅 07.11.2026 👁️ 4
Texas mayor instructs police to limit cooperation with ICE
The new policy, which comes after a Democratic sweep of the state, will limit the people it will inform the immigration agency about to those who have...
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
📅 07.11.2026 👁️ 4
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana
Bandaríkjastjórn býður allt að 20 milljónir dollara í greiðslu og mögulegan flutning til annars lands fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana.Aðger...
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
📅 07.11.2026 👁️ 2
Skepta returns 'to set levels' with his long-awaited sixth album
The grime artist, widely considered to be one of the UK's best, returns with his first album in seven years.
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
📅 07.11.2026 👁️ 4
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi
Yfirvöld í Paragvæ settu fyrrum forseta landsins, Santiago Pena, í stofufangelsi í gær. Saksóknarinn Silvia Margarita Gonzalez Vester sagði í viðtali ...
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
📅 07.11.2026 👁️ 1
'My mortgage has gone up already': How rising interest rates are hitting people's pockets
With UK interest rates set to rise, mortgages, credit cards and loans could get more expensive for millions.
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
📅 07.11.2026 👁️ 3
Skipulögð brotastarfsemi ein helsta ógnin við vestrænt lýðræði og samfélag
Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið ...
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
📅 07.11.2026 👁️ 4
Gladiator II stuntman sues over injuries from on-set explosion
Edward Sarsfield says he suffered "excruciating" burns while filming a scene on a burning ship.
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
📅 07.11.2026 👁️ 1
Jehovah's Witness rules on blood transfusions have changed, but it's too late for my brother
Jehovah's Witness leaders relaxed strict rules on blood transfusions, but the change came 23 days too late for Isaac Valdez.
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
📅 07.11.2026 👁️ 4
Kennararáð Cornell-háskóla lýsir yfir vantrausti á stjórn skólans
Kennararáð Cornell-háskóla í Bandaríkjunum hefur lýst yfir vantrausti á yfirstjórn skólans vegna viðbragða hennar við kynferðisofbeldi innan háskólans...
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
📅 07.11.2026 👁️ 4
Paraguay's President Santiago Peña impeached and arrested
Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
📅 07.11.2026 👁️ 2
Paraguay's President Santiago Peña impeached and under house arrest
Santiago Peña was ousted due to a banking crisis which left millions of people unable to access their money.
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
📅 07.11.2026 👁️ 3
What happens if the internet goes down? BlackSky - the UK's emergency backup plans
A Black Sky event could leave millions without power, water and communications. So how prepared is the UK?
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
📅 06.11.2026 👁️ 3
Kiernan Dewsbury-Hall: England 'disappointment' fuels midfielder's Everton heroics
Kiernan Dewsbury-Hall responds to his England omission by scoring a stunning goal to inspire Everton's 3-1 comeback victory over Coventry City.
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 2
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.