Meira en tvö þúsund íbúar Ceuta gengu um götur borgarinnar á miðvikudagskvöld til að mótmæla viðbrögðum spænskra stjórnvalda við innrásina í borgina.
Mótmælin voru að mestu friðsamleg framan af en enduðu með átökum nærri búðum innrásarmannanna og lögreglan beitti gúmmíkúlum og öðrum óeirðavopnum til að halda hópunum aðskildum.
Myndband af atvikinu hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum með þeirri lýsingu að spænska lögreglan hafi skotið á Spánverja fyrir það eitt að mótmæla ólöglegum innflytjendum.
Spænskir fjölmiðlar staðfesta að lögreglan hafi skotið gúmmíkúlum en segja talsvert meira hafa gengið á áður en til þess kom.
🇪🇸 Hiszpańska policja otworzyła ogień w Ceucie‼️ Strzelają do… Hiszpanów protestujących przeciwko nielegalnym imigrantom. Policja używa gumowych kul.
Tymczasem lewicowe organizacje rozdają gaz pieprzowy… nielegalnych imigrantom. Zbroją Afrykańczyków przeciwko protestującym… pic.twitter.com/n95Qqn4NmW
— Bruno Topola (@BrunoTopola) August 27, 2026
Stefndu að búðum innrásarmannanna
Hluti hópsins huldi andlit sitt og reyndi að komast fram hjá lögreglu og eru sögð hafa hrópað: „Ef þau vilja ekki fara munum við reka þau sjálf í burtu.“
El Español segir suma mótmælendur hafa rifið niður tjöld og önnur skýli, kastað öllu lauslegu í sjóinn og reynt að kasta grjóti í átt að hópnum. El País segir hins vegar að innrásarmennirnir hafi svarað með grjótkasti. Frásögnum miðlanna ber því ekki að öllu leyti saman um hvor hópurinn hóf grjótkastið.
Lögreglan myndaði línu á milli hópanna og kom í veg fyrir frekari átök. RTVE og Euronews segja lögreglu hafa skotið gúmmíkúlum til að stöðva mótmælendurna. El País nefnir að táragasi hafi verið beitt en El Faro de Ceuta talar almennt um óeirðavopn.
Ekki hefur fengist staðfest að byssukúlum eða gúmmíkúlum hafi verið skotið á fólk.
Sumir íbúar mótmæltu hegðun hópsins
El Mundo segir að flestir mótmælendur hafi viljað halda mótmælunum friðsamlegum. Þegar minni hópur færðist nær búðum innrásarmannanna hafi aðrir íbúar reynt að stöðva þá.
Mótmælendur höfðu áður safnast saman fyrir utan skrifstofur spænsku ríkisstjórnarinnar í borginni og krafist afsagnar Pedro Sánchez forsætisráðherra og fulltrúa ríkisstjórnarinnar í Ceuta.
Óánægja og reiði íbúa stafar af því að þúsundir þeirra sem komu yfir landamærin í lok júlí dvelja enn í borginni og ótti er meðal íbúa, enda hafa kynferðisbrot og annað ofbeldi verið daglegt brauð í borginni síðan innrásin hófst.
„Fréttamiðlarnir hafa svikið okkur“
Einnig hafa innfæddir lýst yfir mikilli reiði með þó nokkrar innlendar fréttastöðvar og halda því fram að fréttamenn þeirra keppist við að láta innfædda líta út eins og ofbeldisfólk fyrir að mótmæla innrás í heimaborg sína.
Þeir hafa hópast að fréttamönnum ákveðinna stöðva og rekið þá burt af svæðinu eða truflað útsendingar.
🇪🇸 En España, el medio de izquierda „La Sexta“ tuvo que cortar su emisión en directo justo en el momento en que vecinos de Ceuta corean “Pedro Sánchez hijo de p*ta”.
Los ciudadanos protestan contra el decreto para habilitar espacios y recursos para los invasores ilegales.… pic.twitter.com/VZ7dcBjhSj
— Carlo Martin (@Liberfach0) August 25, 2026
The people of Ceuta have had enough.
When the locals saw that journalists from the liberal TV channel La Sexta had arrived to slander their protest against illegal migration, the locals quickly walked up to them and told them to get lost.
The people of Ceuta feel betrayed 🇪🇸 pic.twitter.com/rA5OYhIf3Z
— Visegrád 24 (@visegrad24) August 27, 2026