Enn er verið að meta stöðuna varðandi mögulegar formlegar viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er staðan óbreytt eftir fundahöld síðustu viku þar sem Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna átti einkafundi með oddvitum Miðflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í fyrradag.
Ekki er vitað um frekari fundahöld í dag.