Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle sóttu 40 ára afmælishátíð David Foster-stofnunarinnar í Viktoríu í Kanada á föstudag.Í myndskeiði sem dreifðist á samfélagsmiðlum má sjá hjónin standa á rauða dreglinum og heilsa gestgjafanum, tónlistarframleiðandanum David Foster, sem hunsar Markle og útrétta hönd hennar. Hjónin stilla sér síðan upp með Foster og eiginkonu hans, Katharine McPhee. Má sjá Foster eiga stutt orðaskipti við Harry á bak við konurnar sem standa á milli þeirra.
Enn eitt vandræðalegt atvik - Hunsuð á rauða dreglinum