Sjötíu og tveir dagar eru nú frá því að Svíar kusu sér nýtt þing. Hvorki hefur gengið né rekið að mynda nýja ríkisstjórn á þeim tíma. Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, gafst upp á að reyna að brúa ágreining Miðflokksins og Vinstriflokksins í morgun en það var önnur tilraun hennar til þess að mynda ríkisstjórn með stuðningi þeirra eftir kosningarnar.
Eftir fund Andersson með forseta þingsins í morgun að þó að viðræður hennar við fulltrúa Miðflokksins, Græningja og Vinstriflokksins hefðu verið uppbyggilegar síðustu vikuna þá hefðu efnislegar samningaviðræður um stefnu flokkanna verið af skornum skammti. Vinstriflokkurinn hefði neitað að taka þátt í slíkum viðræðum.
„Þess vegna er enginn grundvöllur fyrir mig til þess að mynda ríkisstjórn sem þingið gæti lifað með eins og stendur,“ sagði Andersson við blaðamenn.
Miðflokkurinn, sem setti það fyrir sig að Vinstriflokkurinn ætti sæti í ríkisstjórninni, ætlar nú að ræða aftur við Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra, og hægri blokkina. Svíþjóðardemókratar hafa sagst tilbúnir að styðja slíka stjórn.
Andreas Norlén, forseti þingsins, hefur fram að þessu boðað til atkvæðagreiðslan um ríkisstjórnarkosti eftir tvær fyrri misheppnaðar tilraunir til ríkisstjórnarmyndunar. Sænska ríkisútvarpið segir að þriðja atkvæðagreiðslan gæti farið fram fyrir lok mánaðar.
Náist ekki þingmeirihluti fyrir neinni ríkisstjórn eftir fjórar slíkar atkvæðagreiðslur þarf að boða til nýrra kosninga. Norlén hefur sagt að hann vilji leiða málin til lykta fyrir jól.