Með því lýkur jafnframt rekstri Berjaya Hotels Iceland á hótelunum tveimur. Malasíska félagið keypti reksturinn af Icelandair Group árið 2019 en stígur nú til hliðar þegar nýr leigutaki tekur við.
Á hótelunum tveimur eru samtals 471 herbergi og með yfirtökunni stækka Íslandshótel rekstur sinn verulega í Reykjavík. Fyrirtækið rekur fjölda hótela víða um land en viðbótin styrkir stöðu þess enn frekar á höfuðborgarsvæðinu.
Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, segir yfirtökuna hafa mikið vægi fyrir félagið.
„Við erum auðvitað í dag að starfrækja um 2.000 herbergi og nú bætast við 471 herbergi. Og það bara skiptir okkur miklu máli og svona eykur okkar styrk.“
Allt starfsfólk verður ráðið aftur
Eitt stærsta atriðið við eigendaskiptin er staða starfsfólksins. Um 300 manns starfa á hótelunum tveimur í dag og samkvæmt Íslandshótelum verður allt það fólk ráðið til starfa á ný þegar félagið tekur við rekstrinum í september á næsta ári.
„Við munum ráða allt fólk til okkar þannig að það er bara svo að ef við tökum af allan vafa þá mun starfsfólkið, við munum ráða það til okkar," segir Davíð Torfi.
Það er stór þáttur í yfirtökunni enda hafa bæði hótelin gegnt mikilvægu hlutverki í ráðstefnu-, gisti- og veitingarekstri í Reykjavík um langt árabil og byggt upp reynslumikið starfsfólk á fjölmörgum sviðum.
Hilton verði áfram á Suðurlandsbraut
Enn er ekki frágengið undir hvaða nöfnum hótelin tvö verða rekin þegar Íslandshótel taka við. Þó er gert ráð fyrir að húsið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum Hilton-keðjunnar. Óvissa er hins vegar enn um endanlega nafngift á hótelinu við Nauthólsveg.
Samkvæmt Davíð er félagið nú að vinna í þeirri útfærslu samhliða undirbúningi fyrir yfirtökuna. Rekstrargrunnurinn verði þó að mestu sá sami, það er hótelgisting, veitingarekstur, barir og önnur þjónusta sem fyrir er á stöðunum.
Horfa lengra en til yfirtökudagsins
Að sögn Davíðs sýnir samningstíminn að félagið horfi bjartsýnum augum til íslenskrar ferðaþjónustu þrátt fyrir sveiflur sem iðnaðurinn hefur gengið í gegnum undanfarin ár.
„Við erum búin að vera í þessum bransa í meira en 30 ár og við höfum alltaf haft góða trú á íslenskri ferðaþjónustu og munum gera það áfram.“
Þriggja milljarða endurbætur á næstu þremur árum
Samhliða yfirtökunni ætla Íslandshótel og Reitir að ráðast í stórar endurbætur á báðum hótelum. Áætlað er að verja um þremur milljörðum króna í verkefnið á næstu þremur árum.
Um verður að ræða víðtæka endurnýjun, ekki aðeins á herbergjum heldur einnig á sameiginlegum rýmum, móttöku, börum, veitingasvæðum og annarri aðstöðu. Markmiðið er að lyfta hótelunum tveimur verulega og styrkja samkeppnisstöðu þeirra til lengri tíma.
Davíð segir framkvæmdirnar löngu tímabærar.
„Við munum endurnýja þarna öll herbergi og öll bara rými, veitingarými, hótelrými önnur, móttaka, bar og annað slíkt. Þannig að þetta verður allt endurnýjað.“
Þegar hann er spurður hvort þar verði um að ræða einhver flottustu hótel landsins eftir breytingarnar svarar hann:
„Verða það, alveg klárt.“