Elskar upp­þvotta­vélina meira en eigin­konuna - Vísir

Elskar upp­þvotta­vélina meira en eigin­konuna - Vísir

Elskar upp­þvotta­vélina meira en eigin­konuna - Vísir

Nýtt eldhús eftir máli – Þjóðleikhúsið. Frumsýning 17. september

Höfundur: Friðgeir Einarsson. Leikstjóri: Björn Thors. Leikmynd og búningar: Filippía Elísdóttir og Elín Hansdóttir. Leikarar: Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson.

Fáránleiki hversdagsins

Þeir sem þekkja til verka Friðgeirs Einarssonar vita að hann er góður penni. Einna þekktust eru eflaust samvinnuverkefni hans með leikhópnum Kriðpleir sem hefur framleitt fjölda útvarps- og sviðsverka (nú síðast Innkaupapokann í Borgarleikhúsinu sem var frábært). Í verkum Kriðpleirs leikur Friðgeir yfirleitt einhvers konar ýkta útgáfu (vonandi) af sjálfum sér. Hann tekst oft á við fáránleika hversdagslegra hluta og er húmorinn eins konar blanda af Woody Allen og The Office.

Í Nýju eldhúsi eftir máli er Friðgeir hins vegar í hlutverki leikskáldsins og það kemur í hlut Hilmars Guðjónssonar að túlka hversdagshetju Friðgeirs á sviðinu. Maður getur þó ekki annað en mátað höfundinn sjálfan í aðalhlutverkið; stundum lúkkar þetta eins og hefðbundin leiksýning en á köflum er þetta eins og Kriðpleirssýning – nema með leikurum sem ná ekki alveg utan um húmorinn sem einkennir verk hópsins.

Ástfanginn af uppþvottavél

En að leikritinu sjálfu. Við kynnumst hjónunum Daníel og Soffíu. Sambandið hangir greinilega á bláþræði. Daníel er kominn í kulnun og hefur gert heimilið að griðastað sínum. Á meðan er Soffía að klífa metorðastigann í viðskiptalífinu – það er hún sem sér heimilinu fyrir tekjum á meðan Daníel streðar í eldhúsinu og pikkar upp börnin í skólann.

Maður fær ekkert sérstaklega miklar upplýsingar um Daníel í leikritinu – hann virðist hafa starfað í tölvugeiranum, en hvernig týpa hann er, áhugamál hans og ástríða, veit maður minna um. Eina raunverulega ástríðan (eða þráhyggja) Daníels er draumurinn um nýja eldhúsinnréttingu. Hann heldur að efnislegir hlutir geti bjargað geðheilsu hans og fjölskyldunni en sú er auðvitað ekki raunin.

Hilmar í eldhúsinu þungt hugsi.

Kjarninn í verkinu er hið brotna hjónaband Soffíu og Daníels. Þau hafa fjarlægst hvort annað, það er algjör skortur á nánd og því snúast draumar Daníels gjarnan upp í þrá hans eftir samlífi. Afgreiðslustúlka í innréttingarbúð kemur gjarnan fyrir í þessum blautu draumum en á sama tíma og Daníel dreymir um kynferðislega fullnægingu er hann fullur af skömm. Hann felur t.d. módel af nýju innréttingunni inni í skáp og virðist fá meira út úr því að strjúka borðplötur en konuna sína. Það var reyndar meinfyndið þegar uppþvottavélin bauð honum að setja hvað sem er inn í sig.

Ilmur fer á kostum

Margt í leikriti Friðgeirs gengur bara nokkuð vel upp. Ilmur Kristjánsdóttir er frábær í hlutverki Soffíu. Hún nær að túlka breiðan skala tilfinninga með svipbrigðunum einum saman. Senan þar sem Daníel og Soffía ræða um hvað maturinn sem hann hafði eldað fyrir Soffíu myndi kosta á veitingastað var ein sú besta í verkinu og þar fór Ilmur á kostum. Hún ræður vel við þennan absúrd húmor sem Friðgeir er svo góður í. Hún ofleikur aldrei og heldur manni í óvissu um hvað gerist næst.

Önnur flott sena var lokauppgjörið þar sem þau leika ímyndað matarboð – frábærlega skrifuð sena þar sem bæði Ilmur og Hilmar sýna virkilega flotta takta.

Neistinn er slokknaður á milli hjónanna sem Hilmar og Ilmur leika.

Hilmar er orkumikill leikari. Það mæðir meira á honum líkamlega en Ilmi og Hilmir sýnir hvers hann er megnugur – stendur á höndum og þeysist um sviðið. Það er gaman að sjá Hilmar í burðarhlutverki en því miður vantar aðeins fleiri lög í karakter Daníels til að hlutverkið verði virkilega spennandi.

Soffía á sér fleiri hliðar og maður er forvitnari um hvað hún er að hugsa. Samtal milli Soffíu og yfirmanns hennar um hvert hún vill stefna í lífinu var spennandi; á meðan Daníel segir manni allt sem hann hugsar vill maður vita meira um hugsanir Soffíu og þau leyndarmál sem hún býr yfir.

Of margar hugmyndir

Björn Thors er leikstjóri sýningarinnar.

Leikstjóri verksins er Björn Thors en því miður var sumt í leikstjórninni svolítið stefnulaust. Stundum birtust aukaleikararnir á sviðinu í furðulegum aðstæðum sem áttu eflaust að vera fyndnar. 

Einræða Ólafs Ásgeirssonar (líklegast í hlutverki „einhvers annars manns“) um jafnréttismál passaði einhvern veginn ekki inn í verkið og virtist troðið inn til að ögra eða vekja viðbrögð hjá áhorfendum. Það var stílbragð sem heppnaðist ekki og ég á erfitt með að trúa að hafi verið í upprunalegum texta höfundar.

Svo voru einhvers konar danssenur (Margrét Bjarnadóttir er skráð fyrir sviðshreyfingum) sem áttu að túlka hugarástand persóna eða gera verkið listrænna. Mér fannst þær óþarfar og hefði verið betra að treysta bara textanum.

Það vantaði líka meiri dýpt í aukapersónurnar – Ingó og búðarkonu, sem þau Ólafur og Salka Gústafsdóttir túlka. Þeim er svolítið troðið inn í verkið og standa ekki á eigin fótum sem karakterar. Túlkun Ólafs á Gordon Gekko, yfirmanninum Ingó, var líka svolítið ýkt og maður hafði aldrei trú á því að Ingó gæti verið einhvers konar valkostur Soffíu við Daníel – jafnvel þó að Daníel væri algjörlega týndur í fantasíum sínum um eldhúsinnréttinguna. Og búðarkonan, sem var ágætlega leikin af Sölku, hafði það eina hlutverk að vera viðfang í fantasíum Daníels.

Hvað með börnin?

Það er ýmislegt sem tekst vel í nýja eldhúsinu hans Friðgeirs. Hann sýnir okkur áhorfendum að hann hefur þroskaða rödd, gott vald yfir leikhúsmiðlinum og ákveðið stílbragð. En það voru líka annmarkar á leikritinu. Ég átti til dæmis erfitt með að trúa því að þau Daníel og Soffía væru einhvers konar venjuleg kjarnafjölskylda. Þau minnast endrum og eins á börnin sín tvö en börnin eru samt algjörir aukahlutir (enda alltaf off stage) og ég átti hreinlega erfitt með að trúa því að þau væru raunverulega til.

Á einhverjum tíma fór ég jafnvel að velta fyrir mér að það væri grundvöllur harms þeirra og flótta frá raunveruleikanum – að þau hefðu misst börnin sín en tali ennþá um þau líkt og þau séu á lífi og það þurfi að sækja þau í skólann eins og áður. Það hefði allavega útskýrt að einhverju leyti þann sársaukafulla stað sem þau eru bæði komin á.

Það vantaði einhvern veginn útskýringu eða ástæðu fyrir því hvað það var sem gerðist hjá þeim hjónum sem ýtti þeim svona út á brúnina – missir Daníel vinnuna því hann er kominn með þráhyggju fyrir eldhúsinnréttingum eða fær hann þráhyggjuna eftir að hann missir vinnuna?

Björn, Friðgeir, Salka og Hilmar fyrir nokkrum vikum þegar sá síðastnefndi átti eftir að safna glæsilegu hári.Þjóðleikhúsið

Í smásögu Svövu Jakobsdóttur er það eiginmaðurinn Ingó sem smíðar hina fullkomnu innréttingu – sérhannaða eftir máli eiginkonunnar. Hann kemst svo að því að það er ekki innréttingin sem var vandamálið allan tímann heldur eiginkonan og ákveður því að fá sér nýja. Hugmyndir Svövu og gagnrýni á stöðu konunnar (sérstaklega í Sögu handa börnum) eru framsæknar, ögrandi og algjörlega skýrar fyrir lesandann.

Vandamálið í verki Friðgeirs er að hann er með aðeins of marga þræði á lofti og lokaniðurstaðan er svolítið óskýr – fyrir áhugafólk um eldhúsinnréttingar er sýningin hvalreki en aðdáendur góðs stofudrama ganga kannski ekki fullkomlega sáttir út.

Niðurstaða

Friðgeir sýnir okkur að hann er efnilegt leikskáld. Hann er sterkastur í gríninu en gerir hér tilraun til að skrifa dramatískt verk sem tekst svona næstum því. Ilmur og Hilmar standa sig bæði vel en leikstjórnin er á köflum ómarkviss.

#eiginkonuna #elskar #meira #uppþvottavélina #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262938145d/elskar-upp-thvotta-velina-meira-en-eigin-konuna

📰 Aðrar fréttir

Wildfire alert activated in Tenerife and Gran Canaria
📅 23.09.2026 👁️ 1
Wildfire alert activated in Tenerife and Gran Canaria
Tenerife and Gran Canaria have been placed on wildfire alert from 8:00am today (Wednesday) as high temperatures intensify across the Canary Islands.Th...
Fylgi haggast varla eftir at­kvæða­greiðslu - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 1
Fylgi haggast varla eftir at­kvæða­greiðslu - Vísir
Rætt hefur verið um stöðu stjórnarflokkanna í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem þjóðin hafnaði því að fara í aðildarviðræður við Evró...
Thomas Möller skrifar: Straumurinn liggur í ESB
📅 23.09.2026 👁️ 1
Thomas Möller skrifar: Straumurinn liggur í ESB
Mynd Varla var búið að tilkynna niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunna
Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga
📅 23.09.2026 👁️ 1
Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Fréttastofa hefur ...
Rússar beina spjótum sínum að bókaútgáfu Úkraínu – Ráðast á prentsmiðjur og bókaforlög
📅 23.09.2026 👁️ 0
Rússar beina spjótum sínum að bókaútgáfu Úkraínu – Ráðast á prentsmiðjur og bókaforlög
Milljónir bóka hafa orðið að ösku í árásum Rússa á Úkraínu undanfarna mánuði. Prentsmiðjur, vöruhús og bókaforlög hafa orðið fyrir barðinu á árásunum ...
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
📅 23.09.2026 👁️ 0
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga Elli­líf­eyr­is­greiðsl­ur hafa mið­að við of lágt frí­tekju­mark í nær ára­tug sam­kvæmt orða­lagi la...
Gular við­varanir á morgun - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 1
Gular við­varanir á morgun - Vísir
Veðurviðvaranakort Veðurstofunnar verður ansi gult á morgun. Klukkan sjö í fyrramálið taka gildi viðvaranir á Suðurlandi og á miðhálendinu vegna mikil...
€23,800 recovered after fake car scam in the Canary Islands
📅 23.09.2026 👁️ 0
€23,800 recovered after fake car scam in the Canary Islands
Guardia Civil investigators have recovered more than €23,800 after a woman in the Canary Islands was tricked into paying over €25,000 for a car advert...
Hvanna­dals­hnjúkur lækkar - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 1
Hvanna­dals­hnjúkur lækkar - Vísir
Morgunblaðið greinir frá. Þar er rætt við Karl Arnar Arnarson hjá Loftmyndum sem segir Hvannadalshnjúk í eðli sínu snjóskafl sem daglegur munur er á. ...
Segir stóra á­kvörðun fram­undan - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 1
Segir stóra á­kvörðun fram­undan - Vísir
Trump kom víða við í ræðu sinni en hann sagðist standa frammi fyrir stórri ákvörðun um hvort ráðast ætti aftur á Íran eða freista þess að ná samkomula...
26 flugferðum aflýst vegna verkfalls
📅 23.09.2026 👁️ 1
26 flugferðum aflýst vegna verkfalls
Fjöldi fólks er á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal farþegar sem ætluðu að fljúga af landi brott með Icelandair í morgun. Þar er líka Ragnar Visage ljó...
Europe Leads Global Casino Revenue: What this scale means for players
📅 23.09.2026 👁️ 0
Europe Leads Global Casino Revenue: What this scale means for players
In 2024, Europe's online gambling market generated €123.4 billion in gross gaming revenue, a 5% increase from 2023. Online gambling represented 39% of...
Líkams­á­rás í Breið­holti - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 1
Líkams­á­rás í Breið­holti - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefnin frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í nótt. Í Laugardalnum varð umferðarslys en...
US and Iran hold first talks since June after Trump's 'annihilation' threat
📅 23.09.2026 👁️ 1
US and Iran hold first talks since June after Trump's 'annihilation' threat
The talks are the first since a ceasefire collapsed in June, with the sides exchanging fire intermittently.
New heatwave leads to alerts for high temperatures in three Canary Islands
📅 23.09.2026 👁️ 2
New heatwave leads to alerts for high temperatures in three Canary Islands
The Canary Islands Government has activated a pre-alert for high temperatures in Lanzarote, Fuerteventura and Gran Canaria as another spell of intense...
Segir Machado hafa verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins
📅 23.09.2026 👁️ 2
Segir Machado hafa verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins
Friðarverðlaunahafi Nóbels og stjórnarandstæðingurinn Maria Corina Machado hefur verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins Venesúela. Hún hefur ...
Segir að Machado hafi verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins
📅 23.09.2026 👁️ 0
Segir að Machado hafi verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins
Friðarverðlaunahafi Nóbels og stjórnarandstæðingurinn Maria Corina Machado hefur verið hindruð í að snúa aftur til heimalandsins Venesúela. Hún hefur ...
Watch: 'My eyelids became infected - I was scared to sleep'
📅 23.09.2026 👁️ 1
Watch: 'My eyelids became infected - I was scared to sleep'
Three women describe what happened when they travelled abroad for cheap "bleph" eyelid surgery.
Open wounds and eyes that can't close - women warn about cheap bleph eyelid surgery
📅 23.09.2026 👁️ 1
Open wounds and eyes that can't close - women warn about cheap bleph eyelid surgery
A concerning number of patients are reporting problems from treatment abroad, say doctors.
Chris Mason: From inside the room, how Burnham survived first Trump meeting
📅 23.09.2026 👁️ 2
Chris Mason: From inside the room, how Burnham survived first Trump meeting
Burnham seemed nervous at first, knowing how explosive these encounters with Trump can be, writes BBC political editor Chris Mason.
Vilja að innrásinni ljúki fyrir veturinn
📅 23.09.2026 👁️ 1
Vilja að innrásinni ljúki fyrir veturinn
Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að Úkraínumenn séu tilbúnir til að hætta árásum á orkuinnviði Rússa ef þeir geri slíkt hið sama.Þetta sagði...
Rússnesku óligarkarnir verða teknir af efnahagsþvingunarlista ESB
📅 23.09.2026 👁️ 3
Rússnesku óligarkarnir verða teknir af efnahagsþvingunarlista ESB
Lönd Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um að rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman verði teknir af lista Evrópusambandsins y...
Watch: Key moments from UK PM's first UN speech
📅 23.09.2026 👁️ 3
Watch: Key moments from UK PM's first UN speech
In his first speech to the UN as UK prime minister, Burnham highlighted the risks posed by Russian disinformation.
Verkfall flugvirkja hafið - Icelandair aflýsir 26 flugferðum
📅 23.09.2026 👁️ 5
Verkfall flugvirkja hafið - Icelandair aflýsir 26 flugferðum
Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið vegna verkfalls flugvirkja sem hófst á miðnætti.Um er ræða að 26 flugf...
UK to fight Russian disinformation and push new global AI standards, Burnham says
📅 23.09.2026 👁️ 3
UK to fight Russian disinformation and push new global AI standards, Burnham says
The UK could act as "an honest broker" on AI and other global challenges, the prime minister tells world leaders at the UN.
Fella niður 26 flug­ferðir - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 3
Fella niður 26 flug­ferðir - Vísir
Icelandair greinir frá þessu í tilkynningu en Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfestir við Vísi að verkfallsaðgerðir flugvirkja ...
Þetta eru hamingjuríkustu borgir heims fyrir ferðamenn – Norðurlöndin áberandi
📅 23.09.2026 👁️ 3
Þetta eru hamingjuríkustu borgir heims fyrir ferðamenn – Norðurlöndin áberandi
Lissabon í Portúgal er hamingjuríkasta borg heims fyrir ferðamenn samkvæmt nýrri úttekt BookRetreats.Í svokölluðum Holiday Happiness Index voru 47 bor...
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taí­van - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 3
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taí­van - Vísir
Xi mun fara til Washington DC á morgun og er það í fyrsta sinn í rúman áratug sem hann sækir höfuðborg Bandaríkjanna heim. Fyrr á árinu ferðaðist Trum...
'Peeing a jellyfish': Children's ketamine injuries revealed
📅 22.09.2026 👁️ 2
'Peeing a jellyfish': Children's ketamine injuries revealed
Doctors running the UK's first and only dedicated NHS clinic for children with ketamine bladder say they are seeing patients as young as 13.
'Poison seller' who sold my daughter fatal drugs should rot in hell
📅 22.09.2026 👁️ 4
'Poison seller' who sold my daughter fatal drugs should rot in hell
Louise Nunn's daughter bought drugs from Canadian Kenneth Law, who sold toxic chemicals online.
Man who sold toxic chemicals should rot in hell, says mother of woman who killed herself
📅 22.09.2026 👁️ 0
Man who sold toxic chemicals should rot in hell, says mother of woman who killed herself
Louise Nunn's daughter bought drugs from Canadian Kenneth Law, who sold toxic chemicals online.
Europe's car makers are in crisis. Will the threat of war rescue them?
📅 22.09.2026 👁️ 5
Europe's car makers are in crisis. Will the threat of war rescue them?
Auto executives across Europe hope rearmament can help them flex their industrial muscles once more.
IMF tells advanced economies to 'bring debt down' as borrowing costs rise
📅 22.09.2026 👁️ 4
IMF tells advanced economies to 'bring debt down' as borrowing costs rise
In an interview with the BBC, Kristalina Georgieva says economic shocks had pushed "debt levels up like a staircase not to heaven".
Rich nations must cut debt as global shocks push up borrowing costs, IMF chief tells BBC
📅 22.09.2026 👁️ 1
Rich nations must cut debt as global shocks push up borrowing costs, IMF chief tells BBC
In an interview with the BBC, Kristalina Georgieva says economic shocks had pushed "debt levels up like a staircase not to heaven".
Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuð­kúpu­brotnaði - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 4
Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuð­kúpu­brotnaði - Vísir
Petrína Sigrún Helgadóttir segir að Alexander, 13 ára stjúpsonur sinn, hafi farið út á rafhlaupahjóli á laugardag.  „Og við vitum í raun ekki hvað ger...
Framhjól á hjólum grunnskólabarna losuð
📅 22.09.2026 👁️ 4
Framhjól á hjólum grunnskólabarna losuð
Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til foreldra að ræða við börn sín um hættuna sem fylgi því að losa festingar á framhjóli reiðhjóla. Nokkrar tilkynni...
„Lookmaxxing“-áhrifavaldur ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri
📅 22.09.2026 👁️ 4
„Lookmaxxing“-áhrifavaldur ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri
Bandaríski „looksmaxxing“-áhrifavaldurinn Braden Peters, sem kallar sig Clavicular, er ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri, gefa henni áfeng...
Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla
📅 22.09.2026 👁️ 4
Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla
Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherr...
Rare look at the remote data centres powering China's AI ambitions
📅 22.09.2026 👁️ 3
Rare look at the remote data centres powering China's AI ambitions
The BBC is in Inner Mongolia where dozen of Chinese data centres are being constructed, as the country aims to lead the world in artificial intelligen...
Lögreglan leitar að Arturas
📅 22.09.2026 👁️ 4
Lögreglan leitar að Arturas
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni að nafni Arturas Sodys. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.„Lögreglan á höfuðborga...
Hundur kveikti eld á heimili með því að tyggja hanska
📅 22.09.2026 👁️ 4
Hundur kveikti eld á heimili með því að tyggja hanska
Betur fór en á horfðist þegar hundur í Kanada kveikti eld með því að tyggja skíðahanska. Í hanskanum var liþíum batterí.Kanadíska ríkisútvarpið CBC gr...
Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 4
Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á samfélagsmiðlum. Lögregla segir að ekki þurfi að hafa mörg orð um hættuna af slíku. „Og viljum við biðla...
Haraldur heitinn Noregskonungur gróðursetti tré ársins
📅 22.09.2026 👁️ 4
Haraldur heitinn Noregskonungur gróðursetti tré ársins
Tré ársins 2026 var útnefnt við hátíðlega athöfn í dag á Mógilsá undir Esjuhlíðum. Tré ársins er rúmlega 15 metra hátt asktré tileinkað Haraldi V. Nor...
„Gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn“
📅 22.09.2026 👁️ 4
„Gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn“
„Það má segja að Grænland fái mest út úr þessum samningi,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, um varnarsamninginn sem Danir,...
Íran býðst til að opna Hormuz-sund á ný
📅 22.09.2026 👁️ 4
Íran býðst til að opna Hormuz-sund á ný
Íran býðst til að opna Hormuz-sund á ný Fréttin22. september 2026ErlentLeave a Comment Hormuz-sund gæti opnast á ný innan sjö daga ef Bandaríkin slaka...
Stríð við Rússland að verða A-áætlun Evrópu – Rachel Marsden
📅 22.09.2026 👁️ 4
Stríð við Rússland að verða A-áætlun Evrópu – Rachel Marsden
Stríð við Rússland að verða A-áætlun Evrópu – Rachel Marsden Fréttin22. september 2026ErlentLeave a Comment Rachel Marsden, segir að hraðað átak Evróp...
Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flug­vél - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 4
Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flug­vél - Vísir
Larsson opnar sig upp á gátt um málið á samfélagsmiðlinum Instagram. Poppstjarnan hefur farið mikinn undanfarnar vikur og mánuði og var meðal annars t...
Lög­reglan leitar að Arturas - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 4
Lög­reglan leitar að Arturas - Vísir
Þar segir að þetta sé vegna máls sem er til rannsóknar hjá embætti Héraðssaksóknara. Arturas er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna ...
Trump gegn alþjóðlegri miðstýringu – ESB, WEF og arfleifð Endurræsingarinnar miklu
📅 22.09.2026 👁️ 4
Trump gegn alþjóðlegri miðstýringu – ESB, WEF og arfleifð Endurræsingarinnar miklu
Trump gegn alþjóðlegri miðstýringu – ESB, WEF og arfleifð Endurræsingarinnar miklu Fréttin22. september 2026Erlent, Innlent, Júlíus Valsson, TrumpLeav...
„Við erum að læra að lifa með þessari náttúruvá“
📅 22.09.2026 👁️ 4
„Við erum að læra að lifa með þessari náttúruvá“
Hægt er að taka næstu skref í átt að endurreisn Grindavíkur samkvæmt nýju áhættumati almannavarna. Forsendur eru fyrir fasteignakaupum bæjarbúa og skó...