Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði við Skúlagötu í Stykkishólmi í dag. Þetta staðfestir Þorbergur Bæringsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Stykkishólms og nágrennis. Vísir greindi fyrst frá. Ekki hefur náðst í núverandi slökkviliðsstjóra.
Þorbergur segir mikinn eld hafa verið í húsinu. Slökkvistarf standi nú yfir og talsverður mannskapur sé á vettvangi.
Þykkan svartan reyk leggur frá húsinu og yfir bæinn.